Uppbygging Valgeirsstaða í Norðurfirði

Valgeirsstaðir, skáli FÍ í Norðurfirði.
Valgeirsstaðir, skáli FÍ í Norðurfirði.

Í september mun Ferðafélag Íslands ráðast í annan áfanga í uppbyggingu Valgeirsstaða í Norðurfirði. Húsið varð fyrir miklu tjóni í veðurofsa sem gekk yfir landið í desember sl. Á vordögum 2020 var ráðist í fyrsta áfanga í endurbyggingu hússins þegar húsið var einangrað og skipt um þak. Í öðrum áfanga verður rifið innan úr húsinu milliveggir, klæðningar og gólf. Í þriðja áfanga verður húsið endurbyggt að innan. Skálamenn FÍ hafa í mörgu að snúast þessa dagana en á næstu vikum verður lokið við orkuskipti í Langadal, lagfæringum á suðurgafli í Hvítárnesi, ráðist í uppsetningu á aðstöðuhúsi í Nýjadal og lagfæringum á vatnslögnum og rafstöðvarhúsi. Í síðustu viku var lokið að mestu viðgerðum á hitaveitu í Hrafntinnuskeri sem varð fyrir miklum skemmdum í aurskriðum í byrjun sumars.

Til fróðleiks fylgir hér söguleg samantekt Hrafns Jökulssonar um Valgeirsstaði: 

Valgeirsstaðir í Norðurfirði geyma mikla sögu. Í janúar 1916 varð stórbruni á Melum. Þar brann íbúðarhús með viðbyggðri hlöðu og fjósi. Eftir stóðu hjónin Elísabet Karólína Sveinsdóttir frá Naustvík og Steindór Halldórsson frá Melum með ellefu börn. Tveimur árum síðar, fullveldisárið 1918, var hafin bygging á nýju húsi og mjög vandað til verka. Var það timburhús með járnþaki, en þá voru moldarbæir víðast en þó risin stórhýsi í Ófeigsfirði og á Dröngum. Smiður að húsinu var Sigurður Bjarnason, fjölhæfur hagleiksmaður sem drukknaði í hörmulegu sjóslysi með Eir á Faxaflóa 1926 og með honum fjórir aðrir ungir menn úr Árneshreppi.

Steindór lést skömmu eftir að húsið var fullbyggt, 1921, aðeins 55 ára að aldri. Elísabet flutti til Ísafjarðar, en sum af börnum þeirra hjóna lifðu alla ævi í Árneshreppi. Húsið var selt á uppboði, og voru kaupendur Valgeir Jónsson frá Eyri og Sesselja Gísladóttir frá Norðurfirði. Það var síðan rifið og flutt sjóleiðina yfir í Norðurfjörð og endurreist undir stjórn Njáls Guðmundssonar á Njálsstöðum, sem var smiður að mennt.

Valgeir og Sesselja byrjuðu búskap í Norðurfirði 1895 og eignuðust átján börn á tuttugu og einu ári. Þau fluttu inn í endurbyggt húsið árið 1923 ásamt fjórtán börnum. Síðar fæddust mörg barnabörn á Valgeirsstöðum en alls er talið að þrettán börn hafi fæðst í húsinu. Frá þeim hjónum er mikill ættbogi.

Valgeirsstaðir hafa þannig margvíslegt sögulegt og menningarlegt gildi. Húsið sjálft er til vitnis um þá byltingu í húsnæðismálum Íslendinga sem varð upp úr aldamótunum 1900 og miklu gildir líka að saga kynslóðanna á Valgeirstöðum vel varðveitt.

Eyjólfur Valgeirsson skráði sögu Valgeirsstaða árið 1997 að beiðni þv. forseta Ferðafélags Íslands, Hauks Jóhannessonar, en þá hafði FÍ fest kaup á húsinu. Í grein Eyjólfs er mikilsverður fróðleikur um húsið og fólkið sem þar bjó.