Ferðaáætlun FÍ 2020

Frá Hvannadalshnúk 2019
Frá Hvannadalshnúk 2019

Nú er búið að birta ferðaáætlun næsta árs. En það er kannski ekki á allra vitorði hvernig ferðaáætlun verður til. Við leituðum til Sigrúnar Valbergsdóttur, formanns Ferðanefndar FÍ, til að forvitnast um hvert ferlið er.

„Það er öflugt teymi sem kemur að því að setja saman Ferðaáætlun FÍ. Teymið samanstendur af sjö manna Ferðanefnd og starfsfólki skrifstofunnar sem heldur utan ferðir og verkefni félagsins. Þetta teymi er gríðarlega reynslumikið og víðförult og hefur því góða yfirsýn og þekkingu á landinu öllu, ásamt öllum okkar fararstjórum sem leiða ferðirnar.“

Tillögur koma úr ýmsum áttum

Hún segir deildir Ferðafélagsins um allt land skila sínum tillögum að áliðnu hausti á sama tíma og Ferðanefndin er að ljúka störfum. Þau sem sjái um Ferðafélag barnanna og Ferðafélag unga fólksins geri slíkt hið sama. Svo eru það fjallaverkefnin  og hreyfihóparnir. 

„Fjallaverkefnin og lýðheilsuverkefnin hafa sína föstu umsjónarmenn sem vinna þétt með skrifstofunni. Við byrjum þessa vinnu um leið og sumarvertíðinni er að ljúka, þá koma í ljós viðtökur áætlunar síðasta árs og það er í raun það fyrsta sem lagt er til grundvallar fyrir næstu áætlun. Auk eigin hugmynda leitum við eftir tillögum frá fararstjórum og oft berast tillögar að ferðum frá félögum í FÍ. Þetta er alltaf jafn spennandi vinna og sumarið er ekki búið þegar plönin fyrir næsta sumar verða til.“

Sumar ferðir eru sígildar

Sigrún segir áherslurnar geta verið nokkuð breytilegar en þó séu sígildar og vinsælar ferðir alltaf endurteknar eins og á Hornstrandir, í Lónsöræfi og að sjálfsögðu Laugavegsgöngur. Þá eru einnig nokkrar dagsferðir sígildar eins og Leggjabrjótur á 17. júní og Síldarmannagötur að hausti. 

„Svo eru geysivinsælar fjallaskíðaferðir, ekki alltaf þó á sömu svæði og sama má segja um Sögugöngurnar sem eru í áætluninni, en eru alltaf á nýjum slóðum.“

Sigrún bendir líka á að á meðan sum landssvæði komist í tísku detti önnur út og að þau fylgist vel með því. 

Kostnaður við ferðirnar skiptir máli sem og fjölbreytni

„Við reynum að hafa ferðirnar eins hagstæðar og hægt er, minnka trúss og annað sem hleypir upp kostnaði. Við horfum til þess að allt landið er undir í þessari áætlun og sömuleiðis fylgjumst við vel með þegar út koma bækur með leiðarlýsingum á svæðum sem lítið hefur verið horft til. Svo eru félagar í FÍ á öllum aldri og það þarf að vera mikil fjölbreytni i ferðaframboðinu. Allt frá fjögurra skóa ferðum, þar sem gengið er með allt á bakinu og gist í tjöldum yfir í ferðir með rútu þar sem gist er í uppbúnum rúmum á gistihúsum og allt þar á milli.“

Nýjungar nauðsynlegar

„Það er alger nauðsyn að bjóða upp á nýjungar og á það leggjum við mikla áherslu. Það eru yfirleitt 30-40% nýjar ferðir í áætluninni hverju sinni.“

 

Við áréttum að prentað eintak af ferðaáætluninni fer í dreifingu til félagsmanna föstudaginn 10. janúar.