Skálaverðir í Hvítárnes og Hornbjargsvita

Fjallabaksleið nyrðri (F208) og Dómadalsleið (F225) eru báðar opnar
Fjallabaksleið nyrðri (F208) og Dómadalsleið (F225) eru báðar opnar

Við sögðum frá því í síðustu viku að skálaverðir væru mættir í alla skála á Laugaveginum og að þeir væru í óðaönn að undirbúa komu ferðalanga. Nú hefur Vegagerðin opnað leiðina inn í Landmannalaugar og fyrstu gestir eru mættir á svæðið.

 

Skálaverðir í Hvítárnesi og Hornbjargsvita

Þá er einnig búið að opna Kjalveg og er skálavörður kominn í Hvítárnes.

Hópur sjálfboðaliða gerði svo allt fínt í Hornbjargsvita á dögunum og er búið að opna skálann fyrir gestum.

 

Nýidalur opnar síðar

Við vekjum athygli á að ekki er búið að opna skálann í Nýjadal.

 

Hér má sjá yfirlit yfir skála Ferðafélagsins og upplýsingar um þá.

Skálar FÍ