Skógarganga og gróðursetningar

Tré ársins 2021
Tré ársins 2021

Fjórða skógarganga sumarsins verður fimmtudaginn 16. september. Gengið verður um Rauðavatnsstöðina, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur var upphaflega stofnað um að rækta upp, fyrir 120 árum.

Sérstakur gestur í skógargöngunni verður Jón Geir Pétursson, dósent í umhverfis-og auðlindafræði, sem er sérfróður um Rauðavatnsstöðina. Rauðavatnsstöðin er fyrsta skipulagða skógrækt á höfuðborgarsvæðinu. Skógræktarfélag Reykjavíkur var upphaflega stofnað árið 1901 til að kaupa mætti land þar og rækta upp, svo til yrði fagurt skóglendi og útivistarsvæði í nágrenni borgarinnar. Á ýmsu gekk við skógræktina en í dag er þarna myndarlegt skóglendi. Í skógargöngunni verður farið um svæðið, fjallað um tegundir og leifar frá gróðrarstöð sem starfrækt var við Rauðavatn á fyrstu áratugum tuttugustu aldar. Þá verður sérstaklega fjallað um hegg sem er rótarskot af hegg sem var gróðursettur á upphafsárum Rauðavatnsstöðvarinnar. Heggurinn er einn sá elsti á landinu og er ættfaðir fjölmargra trjáa á Suðvesturhorninu. Þessi heggur var tilnefndur tré ársins af Skógræktarfélag Íslands fyrr í sumar.

Fararstjórar eru sem áður Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, og Páll Guðmundsson, framkvæmdarstjóri Ferðafélags Íslands. Gengið verður frá fyrsta hringtorgi þegar komið er til Reykjavíkur, á móts við Norðlingaholt, klukkan 18:00.

Skógargöngur sumarsins 2021 eru samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Skógargöngurnar eru í léttara lagi, um tveggja klukkutíma langar. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

 

Margt fleira er um að vera 16. september, sem er Dagur íslenskrar náttúru. Nokkrir skólar taka þátt í Degi Íslenskar náttúru með því að gróðursetja víðsvegar um Heiðmörk. Einnig skrifar formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur undir undir Bonn-áskorunina sem er alþjóðleg viljayfirlýsing um að græða upp illa farið land og endurheimta skóglendi.

https://www.bonnchallenge.org/