Gönguleiðir: Hafnarfjall

Suðvesturland

Hafnarfjall

Lýsing

Hafnarfjall er tignarlegur fjallabálkur við mynni Borgarfjarðar beint á móti Borgarnesi. Þar eru nokkrir áhugaverðir tindar en algengast er að ganga á fjallið með því að fara upp öxlina sem nær lengst í vestur til þess að komast upp á Gildalshnúk sem er hæsti punktur á því sem almennt er kallað Hafnarfjall.
Fjallið rís hæst í 844 metra yfir sjó en leiðin upp er allgreið þótt hún liggi almennt um brattar skriður. Ágætur stigur hefur myndast á undanförnum áratugum sem liggur meðfram brúninni og er því tilkomumikil gönguleið.
Þetta fjall eins og öll önnur brött fjöll er auðvelt viðfangs á sumardegi. Á vetrum geta myndast mjög hættulegar aðstæður í ís og snjó þar sem leiðin liggur í hliðarhalla. Enginn ætti að fara þarna upp að vetrarlagi nema með jöklabrodda, ísöxi og kunnáttu í notkun þeirra.
Ágætt bílastæði er við rætur fjallsins andspænis Borgarnesi og þar hefst vor ganga. Fyrst er brattur hjalli upp á fyrsta klifið en þaðan er jöfn og sígandi hækkun upp eftir brúnum fjallsins. Seinast er komið upp á brún er þaðan er gengið síðasta bratta spölinn upp á Gildalshnúkinn sem er hæsti tindurinn. Óviðjafnanlegt útsýni gefst af toppnum yfir nærliggjandi fjöll, Borgarfjörð allan og Faxaflóa.
GPS-ferill

Fleiri tindar á Hafnarfjalli

Fyrir áhugasama göngumenn eru ýmsir möguleikar á Hafnarfjalli. Þarna eru fleiri tindar eins og Þverfell, Katlaþúfa, Klausturtunguhóll og Tungukollur svo fáeinir séu nefndir. Fært er flestum göngumönnum að fara upp framan í Tungukolli þótt brattur sé og halda síðan af honum yfir á Katlaþúfu, þaðan á Klausturtunguhól og svo fram á Gildalshnúk og svo hefðbundna leið niður fjallið aftur. Þessi hringur er gott dagsverk en ráðlegt að vera með trakk og undirbúa leiðangurinn með því að afla sér upplýsinga.
Einnig er hægt að fara upp þrönga gjá milli Þverfells og Klausturtunguhóls en það ættu menn samt ekki að gera nema í fylgd kunnugra eða með haldgóðar leiðbeiningar og nákvæman GPS punkt í nesti sínu.