Ferð: Borgarganga: Holt og hólar í Hlíðunum

Borgarganga: Holt og hólar í Hlíðunum

Lýsing

Á undanförnum árum hefur Ferðafélag Íslands staðið fyrir borgargöngu í upphafi árs.
Að þessu sinni verður gengið á hæðir og hlíðar í borgarhluta 105.
Staldrað verður við staði og byggingar sem á leið hópsins verða og sagt frá ýmsum háleitum hugmyndum sem ekki urðu að veruleika.
Genginn verður 4–5 km hringur sem hefst og endar við bílastæðið á Kjarvalsstöðum.

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis.

Brottför/Mæting
Kl. 10:30 frá bílastæðinu við Kjarvalsstaði
Fararstjórn

Pétur H. Ármannsson

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki