Grænihryggur II
- Lýsing
Gönguferð um Friðland að Fjallabaki á Grænahrygg og nánasta umhverfi. Leiðin er um eina fallegustu náttúruperlu landsins og er einstakt á heimsmælikvarða. Krefjandi ganga um einstaklega fjölbreytt og litríkt landslag. Ganga þarf skriður á kafla og vaða ár. Gengið um Halldórsgil, niður í Svigagil og að Grænahrygg.
- Brottför/Mæting
- Mæting á einkabílum á upphafsstað göngu kl 10
- Fararstjórn
- Innifalið
- Fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Fróðleikur
Gott að vita:
- Ganga: 18–20 km
- Hækkun: 800–1000 m.
- Göngutími: 8–10 klst.
- Gott nesti og heitt á brúsa
- Taka með sér vaðskó
- Mælum með að fólk gisti í Landmannalaugum, fyrir eða eftir ferð.
- Hér er kort að upphafstað göngu
Stórbrotin en krefjandi dagsferð - og fyrir þá sem vilja njóta til fulls er tilvalið að gista í Landmannalaugum eftir ferðina.





