Húshólmi við Krýsuvík
- Lýsing
Húshólmi er staðsettur inn í Ögmundarhrauni sem rann árið 1151 í svokölluðum Krýsuvíkureldum. Til að komast að Húshólma þarf að ganga smá spöl á greinilegum stíg í gegnum Ögmundarhraun áður en komið er inn í hólmann. Þar er gaman að virða fyrir sér fornar bæjarrústir sem taldar eru meðal elstu minja landnáms á Íslandi.
Ganga: 7 km. Hækkun: 200 m
Brottför: Kl 10 við Suðurstrandarveg
Vegvísir frá Krónunni við Norðurhellu í Hafnarfirði að upphafsstað;
sjá kort hérVerið öll velkomin, þátttaka ókeypis.
- Fararstjórn
Ingibjörg Jónsdóttir og Hildur Björk Guðmundsdóttir
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Hver getur tekið þátt?
Prjónagöngur er fyrir alla, óháð aldri eða kyni.
Hvort sem þú ert vanur prjónari, heklari eða langar að læra, þá er þetta tilvalið tækifæri til að deila áhugamáli, njóta fersks lofts og hreyfingar í góðum félagsskap.
Göngurnar eru ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá sig
Aðrar prjónaferðir:
- 10. janúar, Prjónaganga í hjarta Reykjavíkur
- 23. apríl, Vatnahringur í Heiðmörk
- 12. -14. júní, Þórsmörk: Garn, prjón og gönguskór




