Geldingadalir

Göngu- og örnefnakort af Geldingadölum

Ferðafélag Íslands gaf sl. vetur út nýtt endurbætt göngu- og örnefnakort af gossvæðinu í Geldingadölum. Kortið nýtist vel nú þegar gos er hafið að nýju, nú í Meradölum. 

Um leið vill FÍ vekja athygli á því kortið sýnir ekki nýjar gosstöðvar eða gönguleiðir að þeim en sýnir ágætlega gossvæðið í heild sinni og helstu örnefni. 

Eiginleikar:
Litur
Vörunúmer 505085Raf
Verðmeð VSK
Verð
3.000 kr.
Göngu- og örnefnakort af Geldingadölum - Rafræn útgáfa - 2.000 kr.
Rafræn útgáfa - 3.000 kr.
Göngu- og örnefnakort af Geldingadölum
Göngu- og örnefnakort af Geldingadölum

Ferðafélag Íslands gaf sl. vetur út nýtt endurbætt göngu- og örnefnakort af gossvæðinu í Geldingadölum. Kortið nýtist vel nú þegar gos er hafið að nýju, nú í Meradölum. Kortið var gefið á sex tungumálum; íslensku, ensku, þýsku, frönsku, pólsku og kínversku.  Kortið er hannað í anda gömlu dönsku herforingjakortanna og þar má finna helstu gönguleiðir við gosstöðvarnar, en einnig örnefni og forminjar eins og sel.

Um leið vill FÍ vekja athygli á því kortið sýnir ekki nýjar gosstöðvar eða gönguleiðir að þeim en sýnir ágætlega gossvæðið í heild sinni og helstu örnefni. 

Við útgáfuna naut Ferðafélagið stuðnings Ferðamálastofu og Loftmynda.

Tilgangurinn með útgáfu kortsins er sýna öruggar gönguleiðir að gosstöðvunum auk þess sem göngufólk er hvatt er til þessa að ganga vel um náttúruna, vera með góðan búnað og fylgja öllum fyrirmælum lögreglu og yfirvalda.

Kortinu fylgir stutt lýsing á helstu gönguleiðunum en einnig hvernig nálgast má útbúnaðarlista fyrir gönguna og nýjustu veðurspá. Loks er á kortinu kóði þar sem með farsíma er hægt að hlaða inn nýjustu útgáfu kortsins á pdf formi og fá þannig uppfærðar upplýsingar um útbreiðslu hraunsins og hvort gönguleiðir hafi hugsanlega lokast.

Kortin eru gefin út á prenti á íslensku og ensku og kostar 1.500 kr. Ágóði er notaður til merkinga og öryggismála á fjöllum.

Höfundur kortsins er Tómas Guðbjartsson. 

Ferðafélag Íslands  áréttar skilaboð almannavarna um að göngufólk taki fullt tillit til leiðbeininga og fyrirmæla frá viðbragðsaðilum. Mikilvægt er að vera vel búin og með nesti og í formi til að ganga 18 - 20 km. Þá er mikilvægt að varast gasmengun og kynna sér leiðbeiningar á heimasíðu almannavarna og hafa í huga að lögregla lokar svæðum gerist þess þörf. Akstur utan vega er sem fyrr bannaður.