Ferð: Kattartjarnarleið - Þjóðhátíðarganga

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Kattartjarnarleið - Þjóðhátíðarganga

Þjóðhátíðarganga
Lýsing

Kattartjarnarleið liggur milli Þingvallarvatns og Hveragerðis. Skemmtileg leið þar sem farið verður um fjöll, gil og gljúfur. Í byrjun göngu þarf að vaða yfir Ölfusvatnsá, svo gott er að hafa með sér vaðskó. Gengið meðfram Ölfusvatnsá að Hrómundartindi, upp Tindagil og að litlu Kattartjörn. Þaðan er farið niður í Reykjadal. Ef tími gefst er hægt að dýfa sér í lækinn áður en haldið er heim á leið, svo þeir sem vilja geta tekið með sundföt og létt handklæði.

Brottför/Mæting
Kl. 8 með rútu frá Reykjavík
Fararstjórn

Guðný Sigurðardóttir og Höskuldur Björnsson

Innifalið
Rúta og fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Gott að vita:

  • Ganga: 16 km.
  • Hækkun um 500 
  • Göngutími: 6- 8 klst.
  • Gott nesti og heit á brúsa
  • Taka með vaðskó