Ferð: Laugavegurinn:  Kvennaferð

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Hálendið

Laugavegurinn:  Kvennaferð

 Kvennaferð
Lýsing

Fimm daga kvennaferð um þessa vinsælu gönguleið sem er af mörgum talin sú fallegasta í heimi. 
Fjölbreytt landslag, m.a. háhitasvæði, litskrúðug líparítsvæði, svartir sandar, grænir skógar og ár, bæði brúaðar og óbrúaðar.

Brottför/Mæting
Kl. 8:30 með rútu frá Reykjavík
Fararstjórn

Ingibjörg Jónsdóttir  og Hildur Hjálmarsdóttir 

Innifalið
Rúta, gisting, trúss og fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbækur fjalla um svæðið og þær er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
                      

                                                                                 

Leiðarlýsing

1.d., föstud. Ekið í Landmannalaugar. Þaðan er gengið undir Brennisteinsöldu um Laugahraun og Stórahver í Hrafntinnusker þar sem verður gist. Ganga: 12 km. Hækkun: 400 m.

2.d. Gengið um litrík gil með hverum og jarðhitavirkni suður úr öskju Torfajökuls og svo niður Jökultungur með slæðufossum í Álftavatn. Ganga:12 km. Lækkun: um 350 m. 

3.d. Gengið úr Álftavatni um Hvanngil. Bratthálskvísl og Bláfjallakvísl vaðnar og arkað yfir sanda undir Hattafelli, Tudda og Tvíböku á leið í skálana í Botnum í Emstrum. Hið stórbrotna Markarfljótsgljúfur skoðað í síðdegisgöngu. Ganga:16 km og lítil hækkun. 

4.d. Þrammað áfram um Fauskatorfur, Almenninga og Kápu uns Þröngá er vaðin. Þaðan um ilmandi birkiskóga Þórsmerkur í Skagfjörðsskála í Langadal. Ganga:16 km oguppsöfnuð hækkun 200 m.

5.d. Morgunganga á Valahnúk fyrir þá sem vilja áður en haldið er af stað til Reykjavíkur rétt fyrir hádegi.  

Þjóðlendur Íslands.
Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins og þess að starfi óbyggðanefndar er að ljúka verður efnt til gönguferða um þjóðlendur í þeim tilgangi að kynna þær fyrir almenningi. Samstarf verður við Ferðafélag Íslands og deildir FÍ í hverjum landsfjórðungi um gönguferðir og fræðslu um þjóðlendur. Gönguferðirnar verða sumarið 2024. 
_______________________________________________________
Fleiri ferðir um Laugarveginn sumarið 2024