Örganga - Hrauntangi við Urriðakotsvatn
- Lýsing
Gengið frá bílastæðinu um Hrauntanga við vesturenda Urriðakotsvatns, en Mjóitangi nefnist sá hluti hans sem nær lengst út í vatnið til suðurs. Þessi hrauntangi átti sinn þátt í því að stífla dalverpið sem Urriðakotsvatn er í og skapa þar með skilyrði fyrir því að Urriðakotsvatn myndaðist. Göngutími: 1 ½ -2 ½ klst.
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis.
- Brottför/Mæting
- Kl. 19 frá bílastæði Toyota umboðsins í Garðabæ.
- Fararstjórn
Jónatan Garðarsson.
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Örgöngur 2023
- 3. maí: Hvaleyrarholt
- 10. maí: Hellisgerði og Víðistaðir
- 17. maí: Hrauntangi við Urriðakotsvatn
- 16. sept: Umhverfis Helgafell í Hafnarfirði




