Ferð: Örganga - Umhverfis Helgafell í Hafnarfirði

Örganga - Umhverfis Helgafell í Hafnarfirði

Lýsing

Lagt af stað frá bílastæði við enda Kaldárselsvegar. Haldið í áttina að Helgafelli eftir malarbornum stíg að Undirhlíðahorni nyrðra. Þar er sveigt til suðurs og litið á nokkra gamla hraungíga í bakhlíðum Undirhlíða. Gengið að Helgafellsskúta á móts við Gvendarselshæð og fyrir vesturenda fellsins framhjá Kastala. Hugað verður að Riddara og Gatinu ofarlega í suðaustanverðu Helgafelli og kjarrinu sem hefur vaxið upp síðustu áratugina í suðausturhlíðum fellsins. Þar var eitt sinn talað um Helgafellsskóg. Síðan er haldið áfram með Kaplatór á hægri hönd að austanverðu Helgafelli og gengið um Valahnúkaskarð að stígnum sem liggur milli Helgafells og bílastæðisins. Göngutími: 3 klst.

Þátttaka er ókeypis og öll velkomin. 

Brottför/Mæting
Kl. 10:30 frá bílastæði við enda Kaldárselsvegar.
Fararstjórn

Jónatan Garðarsson.

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Höfuðljós
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Örgöngur 2023