FÍ kvennakraftur

FÍ kvennakraftur hefur fengið frábærar viðtökur.
FÍ kvennakraftur hefur fengið frábærar viðtökur.

FÍ Kvennakraftur eitt og tvö

FÍ Kvennakraftur er æfinga- og útivistarverkefni fyrir konur sem vilja hreyfa sig úti í náttúrunni. Að auki er hægt að fá leiðsögn íþróttafræðings við styrktarþjálfun heima fyrir.

FÍ Kvennakraftur hefur fengið frábærar viðtökur og nú eru af fara af stað ný verkefni sem standa fram í miðjan júní. Nú er því kjörið tækifæri til að byggja upp gott form fyrir sumarið og taka þátt í frábærum félagsskap.

Kvennakraftur 1 er uppselt en nokkur sæti eru laus í Kvennakraft 2.

Umsjón: Kolbrún Björnsdóttir, leiðsögumaður.
Umsjón fjarþjálfunar: Nanna Kaaber, íþróttafræðingur og einkaþjálfari.

FÍ Kvennakraftur II ( nokkur sæti laus )

Kvennakraftur II er æfinga- og útivistarverkefni fyrir konur sem vilja hreyfa sig úti í náttúrunni. Að auki er hægt að fá leiðsögn íþróttafræðings við styrktarþjálfun heima fyrir. Dagskrá Kvennakrafts II hefst með fjallgöngu / léttu hlaupi á Selfjall og Sandfell 12. apríl. Myndband af fræðslufundi má finna á facebókarsíðu FÍ.

Á mánudögum er farið í fjallgöngu eða fjallahlaup, á fimmtudögum er náttúruhlaup eða fjallahlaup og annan hvern laugardag sameinast báðir Kvennakraftshóparnir í fjallgöngu sem oftast er lengri en mánudagsgöngurnar.

Náttúruhlaupin fara fram á mismunandi svæðum í og við borgina. Til dæmis í Heiðmörk, Öskjuhlíð, Búrfellsgjá, Elliðaárhólma og við Vífilstaðavatn og Hvaleyrarvatn. Staðsetning hverju sinni fer eftir veðri en þegar veður er örlítið krefjandi er alltaf hægt að finna skjól í skógi.

Styrktarþjálfunin fer fram í gegnum netið og er í umsjón Nönnu Kaaber, íþróttafræðings. Á þriðjudögum og föstudögum fá þátttakendur sendar styrktaræfingar og sunnudagar eru teygjudagar.

Verkefnið er hugsað fyrir konur sem hafa einhverja reynslu af fjallgöngum og hlaupum og vilja koma sér í gott fjalla- og hlaupaform.

Ferðafélag Íslands leggur mikla áherslu á að fylgja öllum sóttvarnarreglum í sínu starfi.  Miðað við núgildandi reglur erum við með 9 + 1 í hverri brottför, gætum vel að 2 metra reglunni og fylgjum öllum öðrum leiðbeiningum um samskipti og hreinlæti.  Útivist og reglubundin hreyfing er eitt það allra besta sem hægt er að gera í Covid aðstæðum. 

Umsjón: Kolbrún Björnsdóttir, leiðsögumaður.

Verð með styrktarþjálfun: 90.900 árgjald FÍ 2021 innifalið
Verð án styrktarþjálfunar: 80.900 árgjald FÍ 2021 innifalið

Dagskrá FÍ Kvennakraftur I Vor 2021

Dags.

Vikudagur

Áfangastaður

Lengd/hækkun

 

FÍ facebók

Fræðslufundur ( myndband á netinu)

 

12.04.

Mánudagur

Selfjall og Sandfell

6 km/150m

15.04.

Fimmtudagur

Náttúruhlaup

 

17.04.

Laugardagur

Búrfell Grímsnesi

6 km/500m

19.04.

Mánudagur

Smáþúfur

6 km/550m

22.04.

Fimmtudagur

Náttúruhlaup

 

26.04.

Mánudagur

Blákollur

5 km/360m

29.04.

Fimmtudagur

Náttúruhlaup

 

01.05.

Laugardagur

Geirmundartindur

7 km/630m

03.05.

Mánudagur

Melahnúkur

4 km/400m

06.05.

Fimmtudagur

Náttúruhlaup

 

10.05.

Mánudagur

Skálafell Hellisheiði

6 km/250m

15.05.

Laugardagur

Ármannsfell

9 km/600m

17.05.

Mánudagur

Reykjadalur

8 km/300m

20.05.

Fimmtudagur

Náttúruhlaup

 

27.05.

Fimmtudagur

Náttúruhlaup

 

29.05.

Laugardagur

Kvígindisfell

10 km/430m

31.05.

Mánudagur

Vífilsfell

7 km/470m

03.06.

Fimmtudagur

Náttúruhlaup

 

07.06.

Mánudagur

Móskarðahnúkar

8 km/700m

10.06.

Fimmtudagur

Náttúruhlaup

 

12.06.

Laugardagur

Leggjabrjótur*

16 km/500m


* Ferð frá A – B þá þarf rútu sem er greidd sér

Ferðafélag Íslands áskilur sér rétt til að breyta, fresta eða endurskipuleggja dagskrá fjallaverkefna félagsins vegna sóttvarnarfyrirmæla í tengslum við Covid 19 eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

FÍ Kvennakraftur I ( uppselt )

Kvennakraftur I er æfinga- og útivistarverkefni fyrir konur sem vilja hreyfa sig úti í náttúrunni. Að auki er hægt að fá leiðsögn íþróttafræðings við styrktarþjálfun heima fyrir. Næsta námskeið hefst með fræðslufundi 6. apríl og endar á Leggjabrjóti 12. Júní.

Á þriðjudögum er farið í fjallgöngu eða röska göngu á náttúrustígum og annan hvern laugardag sameinast báðir Kvennakraftshóparnir í fjallgöngu sem oftast er lengri en þriðjudagsgöngurnar.

Styrktarþjálfunin fer fram í gegnum netið og er í umsjón Nönnu Kaaber, íþróttafræðings. Á miðvikudögum og föstudögum fá þátttakendur sendar styrktaræfingar og á mánudögum er teygjudagur.

Verkefnið er hugsað fyrir konur sem hafa einhverja reynslu af fjallgöngum og vilja koma sér í gott fjallaform.