Ferðamennska og rötun
- Lýsing
Ferðamennska og rötun
6. - 8. febrúar, 3 dagarLangt helgarnámskeið þar sem kennd eru grunnatriði í rötun og ferðamennsku. Á föstudag og laugardag er farið í rötun með það markmið að þátttakendur verði sjálfbjarga í notkun áttavita og korta ásamt því að öðlast grunnþekkingu í notkun GPS-tækja. Meðal annars er fjallað um kortalestur, mælikvarða, útreikning vegalengda, bauganet jarðar, áttavitastefnur og misvísun.
Þátttakendur þurfa að koma með áttavita, reglustiku, skriffæri, GPS-tæki og reiknivél.Á sunnudeginum er sjónum beint að ferðamennsku með það markmið að gera þátttakendur hæfari til að stunda útivist af öryggi við erfiðar aðstæður. Fjallað er um ferðahegðun, ofkælingarhættu, fatnað, ferða- og útivistarbúnað, mataræði, veðurfræði og gerð snjóhúsa og neyðarskýla.
- Fararstjórn
Kemur frá Landsbjörgu
- Innifalið
- Kennsla og verklegar útiæfingar.
Greiðslumöguleikar
- Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
- Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest. - Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ. - Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gegnum Netgíró.
Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.
Dagskrá:
- 6.febrúar. Kennt frá kl. 18:30-22, í risi FÍ Mörkinni 6.
- 7 og 8. maí. Kennt frá kl. 9.-17, laugardag og sunnudag, í risi FÍ Mörkinni 6.
Önnur námskeið hjá Ferðafélagi Íslands
- 23.–24. janúar. Snjóflóð 1 Grunnnámskeið
- 4. febrúar. GPS Grunnnámskeið
- 6.–8. febrúar. Ferðamennska og rötun
- 11. febrúar. Veðurfræði
- 20.–22. febrúar. Fjallamennska I
- 11. mars. GPS Grunnnámskeið
- 12.–15. mars & 19.–22. mars.
Vettvangshjálp í óbyggðum (WFR) - 8. apríl. GPS Grunnnámskeið
- 27. apríl, 29. apríl og 4. maí.
Skyndihjálp og óhöpp í óbyggðum - 16. september. GPS Grunnnámskeið




