Austfjarðaveisla
- Lýsing
Hópurinn hittist á miðvikudagskvöldi á Hótel 1001 við Egilsstaði.
Daginn eftir tekur við fjallaskíðaveisla á Austfjörðum þar sem fjöllin verða valin eftir veðurspá og aðstæðum en eftirtalin fjöll eru efst á lista:Snæfell. (1833 m). Hæsta fjall á Íslandi utan jökla og innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs. Frábært fjall til fjallaskíðunar þegar aðstæður eru góðar og hægt að skíða nokkrar ólíkar leiðir á því.
Kistufell inn af Reyðarfirði. (1239 m). Hæsta fjall við Austfjarðaströndina sem býður upp á frábæra langa fjallaskíðabrekku.
Hólmatindur við Eskifjörð. Bæjarfjall Eskifjarðar og eitt tignarlegata fjall Austfjarða. 985 m.
Hoffell við Fáskrúðsfjörð. (1092 m). Bæjarfjall Fáskrúðsfjarðar og niður af því er næstum 1000 m há skíðabrekka.
Ferðinni lýkur á sunnudag með hálfs dags fjallaskíðaferð á Brúðardalsfjall frá Þórudal eða á Sandfell í Skriðdal.- Brottför/Mæting
- Miðvikudagskvöld á Hótel 1001 nótt, við Egilsstaði.
- Fararstjórn
Tómas Guðbjartsson, Salome Hallfreðsdóttir, Skúli Júlíusson og Óskar Ingólfsson.
- Innifalið
- Gisting, matur og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Upplýsingar um gistingu.
Eingöngu er boðið upp á gistingu í tveggja manna herbergum
Gist verður á Hotel 1001 Nótt
Netfang: kristin@1001nott.is
Sími: 853 7700
www.1001nott.is