Ferð: Strútsskáli og nágrenni

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Strútsskáli og nágrenni

Ferðafélag barnanna
Lýsing

Ferðafélag barnanna fer í ævintýralega ferð um hálendi Íslands, þar sem náttúran, leikurinn og samveran ráða för. Við njótum fegurðar hálendisins í léttum göngum, förum í leiki og tökum í spil, segjum sögur og upplifum ævintýri stór og smá. Dvalið er í Strútsskála þar sem umhverfið er dásamlegt og ævintýri leynast víða.

Hægt að greiða ferðir með raðgreiðslum eða netgíró.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir greiðsludreifingu
 

Brottför/Mæting
Kl. 10 á einkabílum (jeppum 4x4) N1 Hvolsvelli
Fararstjórn

Hrönn Vilhjálmsdóttir og Hörður  Harðarson.

Innifalið
Gisting og fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Leiðarlýsing

1.d., fimmtud. Brottför frá N1 Hvolsvelli kl. 12:30. Við ökum inn í Fljótshlíðina og þaðan áfram yfir ár og sanda þar sem víðerni og litadýrð hálendisins taka á móti okkur. Komum okkur fyrir í Strútsskála, könnum nærumhverfið og kynnumst samferðafólki.

2.d.
Við ökum til austurs og yfir Hólmsá. Skiljum bílana eftir og göngum meðfram Hólmsá og skoðum hina stórbrotnu Hólmsárfossa og Rauðabotn. Ganga: 6 km. Göngutími: 3-4 klst.

3.d.
Við leggjum í göngu við Skófluklif og stefnum á Strútslaug sem liggur undir Laugarhálsi. Strútslaug er ein af nokkrum heitum laugum við Hólmsárlón en líklega sú stærsta og sú eina sem vitað er til að hafi verið notuð til baða sig í. Við gefum okkur góðan tíma til að baða okkur og leika í lauginni áður en við höldum til baka í skálann.
Ganga: 10 km. Göngutími: 5-6 klst.

4.d.
Eftir morgunmat og frágang í skála höldum við á hið mikilfenglega Mælifell. Ganga er stutt en snarbrött og útsýnið af toppnum er engu líkt. Að göngu lokinni hefst heimferð, og fyrir þá sem vilja er sundferð á leiðinni heim kærkominn lokapunktur á þessu ævintýri