Ferð: Fótspor Frímanns og ævintýri Huldu

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Fótspor Frímanns og ævintýri Huldu

Söguferð
Lýsing

Hornbjargsviti var um langt árabil einangraðasta byggða ból á Íslandi. Í þessari ferð verður sjónum beint að örlögum vitavarða og lífskjörum þeirra. Frímann Haraldsson var þriðji í röð vitavarða. Hann lést með voveiflegum hætti eftir að hafa unnið kraftaverk í jarðrækt og uppbyggingu Látravíkur. Hulda Eggertsdóttir var rétt komin af unglingsaldri þegar hún flutti með kærasta sínum í Hornvík, sem komin var í eyði og hafði vetursetu. Veðmál í vitanum tengist ákvörðun parsins. Óli Kommi var seinasti vitavörðurinn. Saga þessa fólks kemur fram í bókinni Fólkið í vitanum og byggist ferðin á þeim frásögnum. 

í Hornbjargsvita er boðið upp á einfaldan heimilislegan mat, og þátttakendur smyrja sér nesti af morgunverðarborðinu. Hver og einn tekur með sér eigið „lúxus“ eins og gosdrykki og orku nesti.

Brottför/Mæting
Mæting á Valgeirsstöðum kl. 19.
Fararstjórn

Reynir Traustason og Guðrún Gunnsteinsdóttir

Innifalið
Gisting, sigling, fullt fæði í Hornbjargsvita og fararstjórn.

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

Heimur Hornstranda

Hornstrandir hafa í gegnum tíðina heillað marga. Dæmi eru um að fólk fari áratugum saman á þessar harðbýlu slóðir og uppgötvi stöðugt eitthvað nýtt. Sú var tíð að þéttbýlt var á Hornströndum. Nú er staðan sú að enginn er þar yfir harðasta veturinn en þegar vorar birtist sumarfólkið. 

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

Undirbúningur

 Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

Leiðarlýsing

1.d., mánud. Mæting á Valgeirsstöðum kl. 19. Skoðunarferð um þorpið og farið yfir dagskrá komandi daga. Ganga: 2 km. Hækkun: 20 m. 

2.d. Kl. 10 er siglt í Látravík. Gönguferð í nágrenni vitans. Kvöldvaka. Saga Óla Komma, seinasta vitavarðarins á Hornbjargsvita rifjuð upp. Draugurinn við vélageymsluna, tannlæknirinn í fjörunni og fleiri sögur verða sagðar. Ganga: 5 kílómetrar. Hækkun 50 metrar. 

3.d. Kl. 9 er gengið í Hornvík um Almenninga. Hornbæirnir skoðaðir. Saga, seinustu íbúanna í Hornvík, Huldu Eggertsdóttur og Þorkels Sigmundssonar rifjuð upp. Heimferð um Kýrskarð. Ganga: 7 km. Hækkun 400 m. 

4.d. Gengið í Hrolleifsvík um Axarfjall og út á Bjarnarnes. Fjárhús Frímanns Haraldssonar vitavarðar skoðuð. Kvöldvaka. Saga Frímanns. Ganga: 6 km. Hækkun 300 m. 

5.d. Siglt heim í Norðurfjörð. Gengið um Galdrastíg í Trékyllisvík. Kl. 16. Kveðjustund. Ganga: 1 km. Hækkun: 30 m.