Ferð: Á Ströndum með gleði í hjarta

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei

Á Ströndum með gleði í hjarta

Lýsing

Frískandi göngudagar í einu fámennasta sveitarfélagi landsins, Árneshreppi á Ströndum. Gist er í skála Ferðafélags Íslands að Valgeirsstöðum í þrjár nætur. Í þessari gönguferð verður gengið á Urðartind, Reykjaneshyrnu og Glissu. Fossar skoðaðir, farið í sund, sjósund, teygjuæfingar og slökun. 

Brottför/Mæting
Fyrir kl. 14, á einkabílum að Valgeirsstöðum í Norðurfirði.
Fararstjórn

Agnes Ósk Sigmundardóttir og Steinunn Leifsdóttir

Innifalið
Gisting og fararstjórn. 

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
  • Hleðslubanki

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

    

Síðustu galdrabrennur á Íslandi

Árneshreppur er nyrsta byggð á Ströndum. Samfélagið lifir að mestu á landbúnaði eins og um aldir. Ferðamannastraumurinn ógurlegi hefur ekki náð þangað nema að litlu marki. Flest er eins og það áður var.

Kaffi Norðurfjörður er veitingastaður sem rómaður er af þeim sem notrið hafa veitinga. Sundlaugin í Krossnesi stendur í fjöruborðinu og er fyrir löngu heimsþekkt. Gesturinn horfir út á hafið á milli sundspretta þar sem sjá má öldur brotna á óveðursdögum. Þegar lyngt er má spegla sig í haffletinum.

Heimsókn í Kistuvog er áhrifarík. Þar áttu sér stað síðustu galdrabrennur á Íslandi þegar nokkrir menn voru settir á bálið fyrir að leggja álög á konur í byggðarlaginu með þeim afleiðingum að þær misstu ráð og rænu um tíma. En það urðu ekki allir eldinum að bráð.

Árneshreppur er rammaður inn af fallegum fjöllum sem hvert og eitt veita skemmtilega upplifun. Örkin er eitt þeirra fjalla sem gengið verður á í ferðinni. Fjallið sækir að líkindum nafn sitt í Biblíuna og er jarðfræðilega á meðal elstu fjalla landsins eða 11 milljón ára. Þaðan er frábært útsýni, allt að Hornbjargi í norðri. Og það vekur sterkar tilfinningar að hugsa um Nóa og Örkina þar sem maður stendur á Arkartindi.

Heimsókn í Árneshrepp er ávísun á ljúfa daga í ystu byggð. Þarna er að finna gamla Ísland í sinni fegurstu mynd.

 

Greiðslumöguleikar

  • Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
  • Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
    Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
    Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest.
  • Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
    Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ.
  • Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.

Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.

 

Undirbúningur

Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.

Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.

Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála Ferðafélag Íslands.

 

 

 

Leiðarlýsing

1.d., fimmtud.: Mæting um kl. 14 við bílastæðið á Valgeirsstöðum. Þegar allir eru komnir og búnir að koma sér fyrir, verður gengið á Urðartind. Eftir kvöldmat gefst tækifæri til að slaka á í hinni einstöku Krossneslaug. Ganga: 5 km. Samanlögð hækkun: um 400 m. 

2.d. Keyrt niður í Ingólfsfjörð þar sem gangan byrjar. Fyrsti hluti göngunnar er upp á Hádegisfjall (369 m) þar sem sést vel yfir Ófeigsfjarðarheiði og Drangajökul. Gengið er niður að Runkugili og svo meðfram Húsánni niður í Ófeigsfjörð. Fossinn Blæja fer ekki fram hjá neinum þegar komið er niður í fjörðinn. Gengið sömu leið til baka í bíla. Eftir góða göngu er fátt betra en að láta líða úr sér í heitri lauginni. Fyrir þá sem það kjósa er hægt að dýfa sér í sjóinn áður en farið er í laugina. Ganga: 19 km. Samanlögð hækkun: um 800 m. 

3.d. Stuttur akstur er upp á Eyrarhálsinn þar sem gangan á Glissu byrjar. Fjallið er hæsta fjallið í Árnessýslu (714 m) og stendur á mörkum Reykjarfjarðar og Ingólfsfjarðar. Á góðum degi er þaðan magnað útsýni yfir Ófeigsfjörð, norður á Hornstrandir og yfir á Skagaströnd.

Eins og áður er gott að njóta í heitri lauginni áður en kvöldverður er snæddur og hópurinn nýtur kvöldsins með samveru. Ganga: 11 km. Samanlögð hækkun: um 700 m. 

4.d. Hópurinn tekur þátt og gengur frá í skála í sameiningu og býr sig til brottfarar um kl. 10.
Síðasti viðkomustaður ferðarinnar er við Reykjaneshyrnu sem er einkennisfjall svæðisins.  

Þetta er stuttur göngutúr en mjög skemmtilegt fjall að ganga á. Ganga: 1,5 km. Samanlögð hækkun: um 150 m. 

Aðrar ferðir á Strandir sumarið 2026