Við rætur Drangajökuls
- Lýsing
Gönguferð í Reykjarfirði á Ströndum, þar sem land, haf og jökull mætast. Rekaviðurinn, hafið, blágresið og jökullinn setja svip sinn á þennan dásamlega stað þar sem við dveljum og göngum í friðsælu umhverfi við mörk Hornstrandafriðlandsins.
Farið verður í tvær skipulagðar daggöngur um svæðið (6 – 7 klst.), á Geirólfsgnúp um Sigluvík, og í Þaralátursfjörð um Hvítsanda og Kerlingarvík. Að öðru leyti er frjáls tími til að njóta friðarins, skoða fjörur, fuglalíf og sögu staðarins eða slaka á í sundlauginni.
Gist er fyrstu nóttina á Valgeirsstöðum í Norðurfirði og þrjár nætur í Reykjarfirði (svefnpokagisting) í húsi með eldhúsaðstöðu og salerni og er aðgangur að heitri sundlaug á staðnum.
Þetta er þægileg og fróðleg ferð að ystu mörkum byggðar á Íslandi, ferð fyrir þá sem vilja stíga út úr amstri dagsins og njóta friðsældarinnar við rætur Drangajökuls, þar sem hafið, jökullinn og kyrrðin skapa einstaka upplifun.
- Brottför/Mæting
- Kl. 20 á einkabílum að Valgeirsstöðum.
- Fararstjórn
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Sigurður Pétursson.
- Innifalið
- Gisting, sigling, söguganga, sund og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Fróðleikur
Eftirfarandi árbækur fjallar um svæðið og hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Greiðslumöguleikar
- Kreditkort / Debetkort: Greitt í einni greiðslu við bókun.
- Bankamillifærsla: Greitt í einni greiðslu.
Þegar skráningu í ferð hefur verið lokið sendir skrifstofa FÍ greiðsluupplýsingar.
Greiðsla með millifærslu er því ekki gerð fyrr en bókun er staðfest. - Raðgreiðslusamningur: Lágmarks upphæð kr. 67.000.
Hægt er að gera samning með því að hafa samband við skrifstofu FÍ. - Netgíró: Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu ef óskað er eftir að greiða ferð í gengum Netgíró.
Raðgreiðslur og Netgíró fara eftir kjörum viðkomandi þjónustuaðila.
Við hvetjum ferðalanga til að kynna sér vexti og skilmála áður en samningur er gerður.
Undirbúningur
Þátttakendur í ferð með FÍ hafa kynnt sér leiðarlýsingu og eru meðvitaðir um landslag og aðstæður sem leið ferðarinnar liggur um. Í ferðalýsingum má finna upplýsingar um aðbúnað, áætlaðan göngutíma, vegalengdir og hækkun.
Hér má kynna sér viðmið um erfiðleikastig ferða betur.
Gönguferðir og fjallgöngur eru besti undirbúningar fyrir ferðir FÍ og má t.d. nefna gönguferðir á Úlfarsfell, Helgafell eða Esju fyrir höfuðborgarbúa eða sambærileg fjöll eftir búsetu.
Almennt er gist í svefnpokaplássum í ferðum FÍ nema annað sé tekið fram.
Leiðarlýsing
1.d.,fimmtud. Mæting á Valgeirsstaði í Norðurfirði. Gestir koma sér fyrir í skálanum og farið verður yfir dagskrá næstu daga.
2.d. Siglt frá Norðurfirði í Reykjarfjörð. Hópurinn kemur sér fyrir í húsi, áður en farið er stutta sögugöngu um svæðið með heimamanni. Frjáls dagur að öðru leyti, hægt að rölta um nágrennið, skoða fjörur og kríuvarp og/eða slaka á í sundlauginni og búa sig undir göngur næstu daga.
3.d. Gengið á Geirólfsgnúp, þaðan sem útsýn er ægifagurt í góðu veðri, til Hornbjargs og Drangaskarða. Á þessari leið þarf að vaða Reykjarfjarðarós sem er all straumþungur. Göngutími: 6–7 klst. Hækkun 330m.
4.d. Gengið yfir í Þaralátursfjörð, um Hvítsanda og Kerlingarvík, yfir Reykjarfjarðarháls og endað í Reykjarfirði. Selir, refir og æðarfugl á leiðinni. Göngutími: 6 klst.
5.d. Frágangur í húsinu. Siglt til baka í Norðurfjörð.
Aðrar ferðir á Strandir sumarið 2026
- 25.-28. júní - Á Ströndum með gleði í hjarta
- 2.-6. Júlí - Draumfögru Drangaskörð
- 16.-20. Júlí - Við rætur Drangajökuls
- 9.-.12. júlí - Ævintýri á Ströndum - Ferðafélag barnanna




