Hraun og haustlitir í Búrfellsgjá
- Lýsing
Jarðfræðingur frá HÍ mun leiða göngu um Búrfellsgjá í Heiðmörk ásamt Jóni Erni Guðbjartssyni vísindamiðlara frá Háskólanum. Við ætlum að njóta haustlitanna og sjá og heyra hvernig landið mótaðist í eldsumbrotum. Mikilvægt er að klæða sig vel, vera í góðum skóm og taka með gott nesti. 2 klst.
Hluti af „Með fróðleik í fararnesti,“ verkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem hlaut vísindaverðlaun Rannís 2023
- Brottför/Mæting
- Kl. 12 frá bílstæðinu við Búrfellsgjá.
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Með fróðleik í fararnesti
- 22. janúar: Stjörnu- og norðurljósaskoðun
- 13. apríl: Fuglaskoðun
- 21. apríl: Fjöruferð í Reykjavík
- 12. júní: Pöddulíf í Elliðaárdal
- 22. ágúst: Sveppasöfnun í Heiðmörk
- 28. september: Hraun og haustlitir í Búrfellsgjá
Nánari upplýsingar síðar á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis!
Þjóðlendur Íslands.
Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins og þess að starfi óbyggðanefndar er að ljúka verður efnt til gönguferða um þjóðlendur í þeim tilgangi að kynna þær fyrir almenningi. Samstarf verður við Ferðafélag Íslands og deildir FÍ í hverjum landsfjórðungi um gönguferðir og fræðslu um þjóðlendur. Gönguferðirnar verða sumarið 2024.