Ferð: Sveppasöfnun í Heiðmörk

Suðvesturland
Sveppasöfnun í Heiðmörk
Með fróðleik í fararnesti 
Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Lýsing

Sveppir eru sælgæti en það er betra að þekkja þá góðu frá þeim vondu og eitruðu! Gísli Már Gíslason og fleiri sveppasérfræðingar frá Háskóla Íslands kenna okkur að þekkja matsveppi og aðferðir við að geyma þá og matreiða í fjörugri sveppagönguferð. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát. Ekið í halarófu frá bílastæðinu við Rauðhóla lengra inn í Heiðmörkina. 2 klst.  

Hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.  

Brottför/Mæting
Kl. 17 á einkabílum frá bílastæði við Rauðhóla. 

Með fróðleik í fararnesti

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta!