Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel
- Lýsing
Sjálfur Stjörnu-Sævar, líka þekktur sem Sævar Helgi Bragason, stjörnumiðlari frá Háskóla Íslands, svarar spurningum um norðurljósin, stjörnurnar og vetrarbrautina í gönguferð sem helguð er himingeimnum.
Nauðsynlegt er að klæða sig mjög vel og gott er að taka með sjónauka, nesti og heitt á brúsa. Tími: 2 klst.Ef ekki viðrar til stjörnuskoðunar þennan dag er ferðinni frestað þar til góðar aðstæður skapast. Það verður þá auglýst á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!
- Brottför/Mæting
- Kl. 20 við Kaldársel í Hafnarfirði.
- Fararstjórn
Sævar Helgi Bragason
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Höfuðljós
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Leiðarlýsing
Nánari staðsetning auglýst síðar á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.
Hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.




