Ferð: Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel

Suðvesturland

Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel

Með fróðleik í fararnesti
Lýsing

Sjálfur Stjörnu-Sævar, líka þekktur sem Sævar Helgi Bragason, stjörnumiðlari frá Háskóla Íslands, svarar spurningum um norðurljósin, stjörnurnar og vetrarbrautina í gönguferð sem helguð er himingeimnum. Nauðsynlegt er að klæða sig mjög vel og gott er að taka með sjónauka, nesti og heitt á brúsa. Ef ekki viðrar til stjörnuskoðunar þennan dag er ferðinni frestað þar til góðar aðstæður skapast.  2 klst.

Hluti af „Með fróðleik í  fararnesti,“ verkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem hlaut vísindaverðlaun Rannís 2023

Brottför/Mæting
Brottför: Kl. 20 við Kaldársel í Hafnarfirði

Búnaður

Pakkað fyrir dagsferð

Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring.  Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu / skíðagleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Með fróðleik í fararnesti

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis!

Nánari upplýsingar síðar á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.