Ferð: Randað um Reykjarfjörð

Ert þú félagsmaður í FÍ Nei
Strandir

Randað um Reykjarfjörð

Bækistöðvarferð  - eldri og heldir
Lýsing

Bækistöðvarferð þar sem siglt er í hinn dásamlega Reykjarfjörð á Ströndum og gist þar í 3 nætur. Gengið um nágrennið með léttar byrðar á daginn og látum líða úr okkur í heitri laug og potti á kvöldin. Ferðin hentar því eldri og heldri eða þeim sem velja léttar göngur í fallegu umhverfi. Svefnpokagisting í húsi. Sameiginlegur matur er ekki innifalinn í verði.

Brottför/Mæting
Fyrir kl. 18 á einkabílum að Valgeirsstöðum í Norðurfirði.  
Fararstjórn

Ólöf Sigurðardóttir og Jón Örn Guðbjartsson

Innifalið
Sigling, gisting, söguganga og fararstjórn. 

Búnaður

Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð

Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.

Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.

Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.

Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.

Göngufatnaður

  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
  • Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
  • Peysa úr ull eða flís
  • Göngubuxur / stuttbuxur

Í dagpokanum

  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
  • Áttaviti, landakort og GPS tæki
  • Smurt nesti fyrir daginn
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Vatnsbrúsi
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
  • Göngustafir
  • Myndavél og kíkir
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn og varasalvi
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
  • Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir

Í trússtöskunni

  • Svefnpoki og lítill koddi
  • Bolur til skiptana og til að sofa í
  • Auka nærbuxur og sokkar
  • Höfuðljós
  • Tannbursti og tannkrem
  • Sápa / sjampó
  • Lítið handklæði
  • Eyrnatappar
  • Skálaskór
  • Peningar
  • Núðlur eða pasta í pokum
  • Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
  • Eitthvað gott á grillið
  • Kol og uppkveikilögur
  • Haframjöl
  • Brauð og flatkökur
  • Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
  • Hrökkbrauð og kex
  • Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
  • Kakó, te og/eða kaffi
  • Súpur
  • Krydd, t.d. salt og pipar

Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna

  • Tjald og tjalddýna
  • Prímus og eldsneyti
  • Eldspýtur
  • Pottur
  • Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
  • Diskur og drykkjarmál
  • Hnífapör
  • Vasahnífur / skæri
  • Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur

Fróðleikur

Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.

Leiðarlýsing

1.d, miðvikud. Þátttakendur koma að Valgeirsstöðum fyrir kl. 18 þar sem við gistum fyrstu nóttina. Um kvöldið er fundað um skipulag næstu daga.

2.d. Siglt frá Norðurfirði í Reykjarfjörð. Eftir að hópurinn hefur komið sér fyrir er farið í göngu um svæðið undir leiðsögn heimamanns. 

3.d. Gengið í Þaralátursfjörð, á Hvítsanda og jafnvel á Hánes. Göngutími: 4-5 klst. 

4.d. Gengið inn með Reykjafjarðarósnum í átt að Drangajökli eða á Geirólfsgnúp ef skyggni og veður leyfir. 

5.d.
Létt ganga ef tími vinnst til áður en siglt er til baka í Norðurfjörð. 

Fleiri ferðir á Hornstrandir sumarið 2024