Fuglarnir fljúga heim – Fuglaskoðun í Grafarvogi
- Lýsing
Þegar farfuglarnir flykkjast heim til Íslands er vorið komið og sumarið á næsta leiti. Sölvi Rúnar Vignisson, doktorsnemi og fleiri fuglafræðingar frá Háskóla Íslands, munu leiða ferð um fjöruna í Grafarvogi þar sem farfuglarnir safnast saman. HÍ mætir líka með öfluga fuglasjónauka. Gott er að koma með sína eigin sjónauka og gjarnan fuglabækur. 2 klst.
Hluti af „Með fróðleik í fararnesti,“ verkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem hlaut vísindaverðlaun Rannís 2023
- Brottför/Mæting
- Kl. 13 við Grafarvogskirkju
Með fróðleik í fararnesti
- 22. janúar: Stjörnu- og norðurljósaskoðun
- 13. apríl: Fuglaskoðun
- 21. apríl: Fjöruferð í Reykjavík
- 12. júní: Pöddulíf í Elliðaárdal
- 22. ágúst: Sveppasöfnun í Heiðmörk
- 28. september: Hraun og haustlitir í Búrfellsgjá
Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis!
Nánari upplýsingar síðar á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.