Þjónustufulltrúi
Erna Bergþóra hefur ferðast um landið þvert og endilangt og alla tíð haft mikinn áhuga á ferðamálum. Þegar hún var 12 ára gömul gekk hún í fyrsta sinn Laugaveginn með stórfjölskyldu sinni. Fjöllin hafa heillað og hefur hún gengið á Hvannadalshnjúk, Heklu og Fimmvörðuháls, svo eitthvað sé nefnt.
Erna útskrifaðist með BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á ferðaþjónustu frá Háskólanum á Bifröst árið 2022. Hún er meðlimur í Hjálpasveit skáta í Kópavogi.
Erna Bergþóra starfaði hjá Ferðafélagi Íslands á árunum 2005–2011 og sinnti þar fjölbreyttum verkefnum, meðal annars sem skálavörður, ferðafulltrúi og aðstoðarfararstjóri. Eftir þónokkur ár á öðrum vettvangi hefur hún snúið aftur til starfa hjá Ferðafélaginu.
Ómissandi: Flatkökur með hangikjöti, heitt kakó og súkkulaði.
Leiksvæði: Það eru svo margir staðir, en uppáhalds eru Landmannalaugar og Þórsmörk.

