Barna- og fjölskylduferð í Lamba á Glerárdal
- Lýsing
Lagt er af stað frá bílastæðinu við uppgönguna á Súlur og gengið fram Glerárdal í skála FFA, Lamba, þar sem gist verður eina nótt. Ferðin býður upp á fjölbreytta upplifun úti í náttúrunni, m.a. þarf að stikla yfir læki á leiðinni.
Lambi er vel útbúinn fjallaskáli með olíukyndingu og gashellu en sækja þarf drykkjarvatn í lækinn. Þegar komið er fram í ágúst er farið að dimma á kvöldin og gaman að upplifa myrkrið í fjallakyrðinni. Í skálanum er pláss fyrir 16 manns og því þarf að takmarka fjölda í ferðina. Hér er hægt að sjá meira um skálann Lamba- Brottför/Mæting
- kl. 10 frá bílastæði við uppgöngu á Súlur
- Fararstjórn
Ragnheiður Ragnarsdóttir og Sunn B. Ragnarsdóttir
- Innifalið
- Gisting, fararstjórn
Ferðafélag Akureyrar
Þessi ferð er á vegum Ferðafélags - Akureyrar
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ferðafélag Akureyrar
Netfang: ffa@ffa.is
Sími: 4622720
Leiðarlýsing
1.d., Lagt er af stað frá bílastæðinu við uppgönguna á Súlur og gengið fram Glerárdal í skála FFA, Lamba, þar sem gist verður eina nótt. Ganga: 22 km (11 km hvorn dag). Hækkun: 440 m.




