Ferð: Helgarferð á Herðubreið

Helgarferð á Herðubreið

Ferðafélag Akureyrar -Deildarferð
Lýsing

Árleg ferð FFA á þjóðarfjallið Herðubreið (1682 m). Gist í skála FFA við Drekagil eða í tjaldi.
Nauðsynlegt að vera á jeppum sem komast að uppgöngunni á Herðubreið. Hægt er að sameinast í bíla og því gott að vita ef einhverjir geta tekið farþega.
Hjálmur er nauðsynlegur öryggisbúnaður auk þess þarf að hafa með jöklabrodda og ísöxi til
öryggis.

Brottför/Mæting
Kl. 17:00 á einkabílum (góðum jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn

Selma S. Malmquist

Innifalið
Gisting í tvær nætur og fararstjórn.

Ferðafélag Akureyrar

Þessi ferð er á vegum Ferðafélags - Akureyrar
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ferðafélag Akureyrar

Netfang: ffa@ffa.is
Sími: 4622720

Leiðarlýsing

1. d.föstud.Lagt af stað frá Akureyri kl. 17.
Ekið í Drekagil, gist þar. Kvöldrölt um svæðið ef vill.

2. d.
Gengið á Herðubreið. Gist aftur í Drekagili.
Gangan á Herðubreið er stutt, (6 km upp og niður) og brött (1000 m hækkun). Sjálf gangan getur tekið 6 - 7 klst.

3. d.
Heimferð. Margt er að sjá í Drekagili og fólki gefst tækifæri til að skoða sig um á svæðinu áður en haldið er heim. Gert er ráð fyrir að koma til Akureyrar seinnipart dags.