Ferð: Öskjuvegurinn

Öskjuvegurinn

Ferðafélag Akureyrar -Deildarferð
Lýsing

Í ferðinni er gengið með lágmarksbúnað. Trússbíll ekur með farangur á milli skála. Bíllinn fylgir hópnum allan tímann. Fólk er beðið að takmarka farangur eins og hægt er. Rúta sækir svo hópinn í lok ferðar.
Gist í skálum FFA; Dreka, Dyngjufelli og Botna. Gönguhækkun er lítil á þessari leið.

Brottför/Mæting
Kl. 8:00 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn

Kristín Irene Valdemarsdóttir
Bílstjóri Jón Marinó Sævarsson

Innifalið
Trúss, rúta, gisting í þrjár nætur og fararstjórn

Ferðafélag Akureyrar

Þessi ferð er á vegum Ferðafélags - Akureyrar
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Ferðafélag Akureyrar

Netfang: ffa@ffa.is
Sími: 4622720

1. d., sunnud. Ekið í Dreka, með viðkomu í Herðubreiðarlindum.
Stutt stopp í Dreka þar sem rútan bíður eftir hópnum og ekur svo með hópinn upp á Vikraplan. Þaðan er gengið að
Öskjuvatni og komið við í Víti. Síðan er gengið til baka yfir fjöllin og endað í Dreka þar sem er gist. Ganga: 13-14 km.

2. d.
Ekið upp á Vikraplan. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal.
Gist í Dyngjufelli, skála FFA. Ganga: 14 km.

3.d.
Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA. Ganga: 20-22 km.

4.d.
Gömlum jeppaslóða er fylgt frá Botna í Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. Ganga: 15-16 km.
Ekið með rútu til Akureyrar. Gert ráð fyrir að koma þangað um kl. 17.