Ævintýraferð fjölskyldunar inn í Kverkfjöll og Öskju
- Lýsing
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Náttúruskólinn fara í enn eina Ævintýraferð fjölskyldunnar en nú er farið inn í Kverkfjöll og Öskju þar sem þjóðsögurnar lifna við.
Ferð um einstakt landslag og náttúrufegurð þar sem þögnin er engu lík, þjóðsagaarfurinn lifnar við og auðvelt er að gleyma sér í andartakinu.- Brottför/Mæting
- Kl. 08 við hús FFF Tjarnarási 8 á Egilsstöðum
- Innifalið
- Rúta, gisting og fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
Þessi ferð er á vegum Ferðafélags Fjótsdalshérað
Nánari upplýsingar og skráning í ferð fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið: ferdaf.@ferdaf.is
Sími: 8635813
Alla nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
Leiðarlýsingar
1.d. fimmtud. Hittumst við hús FFF Tjarnarási 8 á Egilsstöðum kl 8 og hoppum um borð í fjallarútuna Frú Valgerði.
Ekið af stað inn í Kverkfjöll og stoppað verður á slóðum útilegumanna í Hvannalindum og gengið þar um með leiðsögn frá þjóðgarðinum. Komið í Sigurðarskála seinnipartinn, þar sem hópurinn kemur sér notalega fyrir. Kvöldið nýtt til leikja, sögustundar og gleði í ágúströkkrinu.
2.d. Í dag er gengið um nágrenni Sigurðarskála. Fyrir hádegi verður vappað upp á Virkisfell sem er um 4 km ganga fram og til baka og njótum stórkostlegs útsýnis yfir svæðið. Eftir hádegi ökum eða göngum við inn að jökulsporði og öndum að okkur kyrrð og krafti jökulsins. Göngulengd inn að jökli er 4 km. Gistum aftur í Sigurðarskála um kvöldið og nýtum það til samveru og óbyggðakvöldvöku.
3.d. Þessi dagur verður sannarlega stútfullur af mikilfenglegri náttúru. Höldum af stað kl 8:00 að eldstöðinni í Öskju. Þegar komið er í Öskju þá er farið inn í hið kyngimagnaða Drekagil og inn að sprengigígnum stórfenglega Víti. Þessi dagur samanstendur af þægilegum göngum í styttri kantinum. Farið til baka í Sigurðarskála og gist síðustu nóttina þar.
4.d. Tökum daginn snemma, kveðjum víðernin og allar þær verur og vættir sem þar búa. Við keyrum áleiðis heim með viðkomu í Möðrudal og Skessugörðum og kíkjum eftir skessunum sem hlóðu garðinn. Áætluð heimkoma til Egilsstaða er seinnipartinn.
Ferðin er samstarf Ferðafélags Fljótsdalshéraðs og Náttúruskólans og er styrkt af Héraðsverki. @natturuskolinn.is




