Ævintýraferðir fjölskyldunnar – Húsavík á Víknaslóðum
- Lýsing
Ævintýraferðir fjölskyldunnar byggjast á útiveru og samveru í austfirskri náttúru sem sérstaklega eru miðaðar að börnum og foreldrum þeirra. Ferðirnar eru byggðar upp á þremur áhersluþáttum; jákvæðri upplifun, fræðslu og fjölskyldusamveru. Þessir þrír áhersluþættir sameinast í því að styrkja fjölskylduböndin, byggja upp tengsl milli barna og náttúru auk þess að gera barnið sjálft að sterkari einstaklingi sem getur leitað til náttúrunnar til að efla trú á eigin getu og auka vellíðan.
- Brottför/Mæting
- Kl. 09:00 í félagsheimilinu Fjarðarborg
- Fararstjórn
Þórdís Kristvinsdóttir og Hildur Bergsdóttir
- Innifalið
- Skálagisting, leiðsögn, trúss og kvöldverður í Húsavík
Búnaður
Pakkað fyrir trússferð eða bækistöðvarferð
Í trússaðri ferð er farangur fluttur á milli náttstaða svo aðeins þarf að bera nauðsynlegan búnað fyrir einn dag í einu í léttum dagpoka. Mat, svefnpoka og tilheyrandi er pakkað ofan í trússtösku og flutt í náttstað, sem getur ýmist verið tjaldstæði eða skáli.
Þó að ekki þurfi í trússferðum að skera allan útbúnað niður eins og þegar gengið er með allt á bakinu þá er nauðsynlegt að pakka naumt. Oftast er takmarkað pláss í trússbílum og bátum og pökkun þarf að taka mið af því.
Bækistöðvaferð er svipuð trússferðum en þá er gengið með dagpoka út frá sama náttstað allan tímann, tjaldi eða skála. Í bækistöðvaferðum er farangur ekki trússaður á milli náttstaða og hægt að vera enn frjálslegri í pökkun en í trússferðunum.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála eða dvalið í skála, þá má þar oftast finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis eða kamars með klósettpappír.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- Hleðslubanki
Í trússtöskunni
- Svefnpoki og lítill koddi
- Bolur til skiptana og til að sofa í
- Auka nærbuxur og sokkar
- Höfuðljós
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði
- Eyrnatappar
- Skálaskór
- Peningar
- Núðlur eða pasta í pokum
- Pulsur eða foreldaðar kjúklingabringur
- Eitthvað gott á grillið
- Kol og uppkveikilögur
- Haframjöl
- Brauð og flatkökur
- Smjör og álegg, svo sem ostur, kæfa, hangikjöt
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Ef sofið er í tjaldi þarf að auki í trússtöskuna
- Tjald og tjalddýna
- Prímus og eldsneyti
- Eldspýtur
- Pottur
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Vasahnífur / skæri
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
FERÐAFÉLAG FLJÓTSDALSHÉRÐAS
Þessi ferð er á vegum Ferðafélags Fljótsdalshéraðs
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs
Netfang: ferdaf@ferdaf.is
Sími: 863 5813
Leiðarlýsing
1.d. laugard. Mæting hjá félagsheimilinu Fjarðarborg kl. 9:00 og ekið að Krossmelum þar sem bílar verða skildir eftir. Gengið yfir Húsavíkurheiði niður í Gunnhildardal og þaðan út í Húsavík þar sem fjara verður könnuð og margt fleira, gengið verður svo í skála FFF. Matur og samverustund um kvöldið.
2.d. Gengið af stað kl. 10:00 inn Gunnhildardal en í Gunnhildardal býr tröllkonan Gunnhildur. Dagurinn verður skipulagður eftir veðri og vindum og mögulega verður farið upp á Náttmálafjall ef þannig viðrar. Síðan verður gengið í bíla og er heimferð áætluð um 16:00.




