Náttúra og saga í Kelduhverfi
- Lýsing
Kelduhverfi geymir marga fallega staði, í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum og víðar í sveitinni.
Sex daga bækistöðvarferð í fallegu umhverfi þar sem við njótum náttúrunnar í rólegheitum.
Gist er í gistihúsinu Vegg í Kelduhverfi.
- Brottför/Mæting
- Mæting á veitingastaðinn Vegg kl 19:00
- Fararstjórn
Halldóra Gunnarsdóttir
- Innifalið
- Gisting í uppbúnum rúmum, fullt fæði, akstur, göngukort og fararstjórn.
Ferðafélagið Norðurslóð
Þessi ferð er á vegum Ferðafélagsins Norðurslóðar
Nánari upplýsingar er að finna á facebooksíðu félagsins
Skráning í ferð fer fram með því að senda tölvupóst.
Netfangið: ffnordurslod@simnet.is
Síma: 8928202
Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina í síðasta lagi 1. júní
1. d. laugardagskvöld: Kvöldmatur á Vegg kl. 19:00.
Fundur um komandi daga kl. 20:00.
2. d. Í kringum Lónin vestast í Kelduhverfi.
Gengið verður frá Fjallahöfn suður hlíðina vestan Lónanna en þaðan er gott útsýni yfir Lónin. Sunnan Lónanna verður litið eftir uppsprettum og svo verður hringnum lokað með því að ganga norður Flæðarnar austan Lónanna. Ganga: 11 km.
3. d. Við ökum að Garði í Kelduhverfi og göngum inn í heiðina sem geymir margt skemmtilegt, að Hraunstakkaborg sem er sérstök náttúrusmíð. Við lítum einnig á Skjálftavatnið og göngum meðfram Veggnum og Veggjargjánni. Ganga: 9 km.
4. d. Svínadalshringur í Vatnajökulsþjóðgarði. Skammt suður af Vesturdal liggur Svínadalur, harðbýl en grösug jörð þar sem búið var við fábrotnar aðstæður allt til 1946. Þar tengdust maður og náttúra í samhljómi og átökum, í blíðu og stríðu. Fjölmargar mannvistarleifar og örnefni bera því vitni og segja sögu af horfnum heimi. Komið að Karli og Kerlingu, Kallbjargi og Svínadal áður en hringnum verður lokað í Vesturdal.
Ganga: 7 km.
5. d. Ekið í Vesturdal og gengið þaðan um Hljóðakletta, Rauðhóla og Klappir niður í Ásbyrgi. Frábært útsýni yfir gljúfrin og Ásbyrgið, einstakar jarðmyndanir, jarðsaga og fjölbreytt lífríki.Ganga: 14 km.
6. d. Kveðjustund og brottför.




