Í tröllahöndum á hæstu fjöllum
- Lýsing
10.- 16. júlí, 7 dagar
Fimm göngudagar um svarfdælsk háfjöll, þar af átta af hundrað hæstu tindum landsins. Gengið um dali og fjallaskörð með gistingu að Tjörn í Svarfaðardal og í Tungnahryggskála. Fjölbreyttar og krefjandi dagleiðir um ægifagran fjallasal. Jarðfræði, jurtagreining, örnefnastúdía og þjóðfræði, í bland við alþýðukveðskap og innansveitarkróniku.Í þessari ferð verður gengið á átta af hundrað hæstu tindum landsins. Sjá nánar.
- Brottför/Mæting
- Kl. 20 að kvöldi 11. júlí að Tjörn, Svarfaðardal.
- Fararstjórn
- Innifalið
- 6x gisting, 6x morgunverður, 5x nesti, 5x kvöldmáltíð og fararstjórn.
Búnaður
Pakkað fyrir bakpokaferð
Þegar gengið er með allt á bakinu er nauðsynlegt að skera útbúnað niður eins og hægt er, án þess að sleppa nauðsynjum. Hafið bakpokann ekki þyngri en þið treystið ykkur til að bera. Hæfileg þyngd fer eftir líkamsástandi hvers og eins en oft er miðað við að bakpoki skuli ekki vera þyngri en 15-20% af líkamsþynd þess sem ber hann.
Athugið að listinn hér að neðan er ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar og hvort sofið er í skála eða tjaldi. Ef gengið er á milli skála, þá má í flestum skálum Ferðafélags Íslands finna eldunaraðstöðu og matarílát auk salernis/kamars með klósettpappír.
Ýmislegt
- Bakpoki, ekki of stór
- Svefnpoki, léttur og hlýr
- Bakpokahlíf / plastpokar inn í bakpokann
- Tjald og tjalddýna
- Göngustafir
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Höfuðljós
- Viðgerðasett, nál og tvinni, snæri og klemmur
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Broddar, ef þurfa þykir
- Peningar
Snyrtivörur / sjúkravörur
- Hælsærisplástur, plástur og teygjubindi
- Verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Tannbursti og tannkrem
- Sápa / sjampó
- Lítið handklæði / þvottapoki
- Sólvarnarkrem og varasalvi
- Eyrnatappar
Mataráhöld / eldunartæki
- Prímus, eldsneyti og pottur
- Eldspýtur
- Diskur og drykkjarmál
- Hnífapör
- Hitabrúsi og drykkjarbrúsi
- Vasahnífur / skæri
Fatnaður
- Góðir gönguskór
- Vaðskór / skálaskór
- Tvö pör mjúkir göngusokkar
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Nærbuxur til skiptana
- Nærföt, ull eða flís
- Flís- eða ullarpeysa
- Millilag úr ull eða flís
- Göngubuxur
- Stuttbuxur
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar
Matur
- Frostþurrkaður matur
- Núðlur eða pasta í pokum
- Haframjöl
- Smurt brauð og flatkökur
- Hrökkbrauð og kex
- Þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Kakó, te og/eða kaffi
- Súpur
- Krydd, t.d. salt og pipar
Fróðleikur
Eftirfarandi árbók fjallar um svæðið og hana er hægt að kaupa í vefverslun okkar.
Leiðarlýsing
1.d., mánud. Farið yfir dagskrá næstu daga yfir kaffi og kleinum. Gist að Tjörn.
2.d. Gengið á Dýjafjallshnjúk, hæsta fjall Dalvíkurbyggðar (1445 m) frá Dagverðartungu í Hörgárdal. Gengið upp Ytri-Tungudal með jafnri hækkun inn undir botn en þar tekur við snögg en góð hækkun allar götur upp á toppinn. Af Dýjafjallshnjúk er stefnan tekin eftir eggjum og 55 m. lækkun á Kvarnárdalshnjúk (1425 m.) Af Kvarnárdalshnjúk er haldið beint ofan í Kvarnárdalsbotn og áfram niður í Klængshól í Skíðadal og ekið í Tjörn þar sem er gist. Ganga: 14 km. Hækkun: 1255 m. Göngutími: 10-12 klst.
3.d. Farið fram í Stekkjarhús í Skíðadal að Skíðadalsá þar sem hópurinn verður selfluttur yfir á dráttarvél. Stefnan tekin upp í Heiðinnamannadal og áfram inn í botn þess dals, í skarð sem heitir Lambárskarð. Þá er stefnan tekin upp á milli hnjúkanna sem eru takmark dagsins, og förum við fyrst á Hafrárhnjúk (um 1400m) þaðan förum við til baka og stefnum beint upp á hitt fjallið sem heitir Heiðingi (1402 m).
Ganga: 17 km. Hækkun: 1160 m. Göngutími: 10-12 klst.
4.d. Gengið frá Stekkjarhúsi inn Skíðadal, að Almenningsbrú, sem liggur yfir Skíðadalsá, yfir í Almenning og áfram meðfram Almenningsfjalli inn í botn Skíðadals. Þar er haldið á brattan með stefnu á Svarfdælaskarð sem skilur á milli Skíðadals og Barkárdals, og þaðan rakleitt upp á öxlina milli Leiðarhnjúkanna Eiðs og Steingríms. Þá er farið niður á Tungnahryggsjökul, Svarfdælaleiðí Tungnahryggsskála, sem stendur í réttum 1200 m. og verður okkar næsti náttstaður. Ganga: 19 km. Hækkun: 1030 m. Göngutími: 10-12 klst.
5.d. Gengið frá Tungnahryggskála með stefnu á Hólamannaskarð sem skilur á milli Kolbeinsdals í Skagafirði og Barkárdals í Eyjafirði. Þegar í skarðið er komið er sveigt til hægri og gengið í jaðri Barkárjökuls. Þá er lagt til atlögu við Hólamannahnjúk sem er 1406 m. og hæstur tinda í Skagafjarðarsýslu utan Hofsjökuls. Af Hólamannahnjúk er gengin sama leið til baka niður á Barkárjökul og þvert yfir hann með stefnu á Héðinsskarð og um það upp á Jökulfjallið. Þar uppi eru tveir hnjúkar, Tungnahryggsjökul og gengið til baka í Tungnahryggsskála þar sem gist er aðra nótt. Ganga: 19 km. Hækkun: 200 m. Göngutími: 10-12 klst.
6.d. Gengið frá Tungnahryggsskála þvert yfir austari botn Tungnahryggsjökuls, í skarð milli leiðarhnjúkanna Steingríms og Eiðs. Þaðan þvert yfir Svarfdælaskarð og á bakvið Litlakoll, Blástakk og Vörðufell í Féeggjarskarð og þaðan á Stapa (1397 m). Af Stöpum er stefnan tekin ofan í Litladal, niður Gljúfrárjökul og áfram niður að Almenningsbrú þar sem hringnum er lokað og áfram niður í Stekkjarhús. Ekið heim í Tjörn þar sem bíður okkar dýrindis kvöldverður og gisting. Ganga: 18,5 km. Lækkun: 1010 m. Göngutími: 10-11 klst.
7.d. Morgunmatur. Úti er ævintýri.