Afmælisfjallganga Ferðafélags barnanna fimmtudaginn 13. júní kl. 19

Allir krakkar og fjölskyldur þeirra eru boðin hjartanlega velkomin í afmælisfjallgöngu Ferðafélags barnanna fimmtudaginn 13. júní kl. 19 á Helgafell í Hafnarfirði. Ingó veðurguð ætlar að koma með gítarinn og halda uppi fjörinu og Fjallakofinn sem jafnframt fagnar 15 ára afmæli ætlar að gefa öllum duglegum krökkum afmælisglaðning. Þetta verður alvöru afmælisveisla og eru allir vinir Ferðafélags barnanna hjartanlega velkomnir!

"Við hlökkum mikið til að hitta nýja og gamla vini Ferðafélags barnanna í afmælisfjallgöngunni. Það er fátt betra á fallegum sumarkvöldum en að drífa sig út með fjölskyldunni og efla sál og líkama" segir Dalla Ólafsdóttir annar umsjónarmanna Ferðafélags barnanna."Við minnum á gullna reglu Ferðafélags barnanna að taka uppáhaldsnesti barnanna með og heitt kakó á brúsa er auðvitað klassískt."

Í göngunni á Helgafell ætla börn og fullorðnir að njóta kvöldsólarinnar sem lætur næsta örugglega sjá sig. Þetta er skemmtileg ganga sem um leið er nokkur áskorun fyrir alla duglega krakka. Á toppnum verður svo auðvitað sunginn afmælissöngurinn til heiðurs Ferðafélagi barnanna. Gott er að vera í góðum skóm og verður lagt af stað frá bílastæði við Kaldárselsveg.

Allar nánari upplýsingar um afmælisvikuna og starf Ferðafélags barnanna má finna hér: https://www.fi.is/is/ferdafelag-barnanna og á síðu Ferðafélags barnanna á Facebook.