Allir út að hreyfa sig

Í góðri fjallgöngu sem og í allri hreyfingu úti í náttúru endurnærir maður líkama og sál.
Í góðri fjallgöngu sem og í allri hreyfingu úti í náttúru endurnærir maður líkama og sál.

Allir út að hreyfa sig

Rannsóknir sýna að hreyfing hefur mikil og góð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Flest öll finnum við hvað það gerir okkur gott að fara út og hreyfa okkur. Það er manneskjum eðlislægt að vera úti og njóta útivistar, anda að sér fersku lofti. Með reglulegri útivist bætum við líkamlegt form og aukum andlega vellíðan. Sýnt hefur verið fram á að félagslegur stuðningur er mjög mikilvægur. Hringja í vin, vera í hóp og fá stuðning frá öðrum getur gert gæfumuninn fyrir suma til að fara út og hreyfa sig.

Í Ferðafélagi barnanna settu börnin sjálf sér reglur þegar félagið var stofnað fyrir rúmum 10 árum. Þær reglur eru afar góðar og geta svo sannarlega átt við útivist og hreyfingu fullorðinna.

  • Allir geta farið í ferðalag
  • Við viljum gjarnan hafa vin okkar með
  • Við viljum taka þátt í að skipuleggja ferðina
  • Okkur langar að ganga á undan og ákveða hraðann
  • Við viljum hafa tíma til þess að leika og upplifa spennandi hluti
  • Við viljum hafa tíma til að tala um það sem fyrir augu ber
  • Við viljum fá eitthvað gott þegar takmarkinu er náð
  • Við viljum hafa það notalegt á kvöldin þegar við erum að gista
  • Við viljum ekki vera köld, blaut eða hrædd.

Ásamt jákvæðum áhrifum á líkamlegt from fylgir því mikil andleg vellíðan að vera úti og njóta útsýnis og útivierunnar. Núna þegar vorið er framundan þá gleður líka margt nýtt augað á hverjum degi. Gróður er að vakna og farfuglar koma til landsins og góðurlykt, náttúruhljóð og fuglasöngur örvar og gleður sálina.

Hreyfing og útivera hafa jákvæð áhrif á andlega líðan

Ekki síst við þær aðstæður sem nú hafa verið í samfélaginu sl. ár er mikilvægt að leita eftir stuðningi og styðja um leið aðra. Það er mikilvægt að muna að gott líkamlegt form og góð andleg líðan er mikilvæg til að við komast í gegnum þá erfiðleika sem tengjast COVID-19. Hreyfing og útivist hefur afar jákvæð áhrif á andlega líðan okkar.

Fjölbreytileiki útivistar

Fjölbreytileiki útivistar og afþreyingar tengdri hreyfingu úti í náttúrunni hefur líklega aldrei verið meiri. Fólk hjólar, gengur, hleypur, syndir,  skíðar, siglir, ríður út og svífur um og þannig mætti lengi telja. Öll hreyfing er af hinu góða.
Okkur líður vel ef við hreyfum okkur á hverju degi . Líkamlegt form okkar eflist og styrkist, meðal annars vegna þess að  beinabyggingin styrkist og liðirnir mýkjast, vöðvakrafturinn í fótunum eykst, jafnvægið batnar og hættan á að hrasa og slasa sig minnkar. Flestir hafa tekið eftir því, að með að stunda líkamsrækt jafnvel á hóflegum hraða, örvast blóðrásin ííkamanum meðal annars til heilan.  Þessi líkamlega áreynsla losar svo kölluð endorfin sem gera það að verkum að við slökum á og finnum til vellíðunar.

Nú er kjörinn tími þegar vorið er framundan til að reima á sig skóna og fara út og hreyfa sig.

https://www.mbl.is/ferdalog/frettir/2021/03/13/allir_ut_ad_hreyfa_sig/