Allt á kafi í Hrafntinnuskeri

Það er enginn skortur á snjó við skálann
Það er enginn skortur á snjó við skálann

Okkur bárust þessar myndir frá helginni úr Hrafntinnuskeri en eins og sjá má þá er þar enginn skortur á snjó. 

Mesti snjór á svæðinu í að minnsta kosti 20 ár

Halldór Hafdal Halldórsson, eða Dóri okkar, var sjálfur í Landmannalaugum fyrir stuttu og segist ekki hafa séð svona mikinn snjó í þau 20 ár sem hann hefur verið á svæðinu. Þetta sé mun meiri snjór en venjulega. Þetta séu kjöraðstæður fyrir fólk á ferðaskíðum þótt hver fari kannski að verða síðastur.

Aðspurður hvort þetta komi til með að hafa áhrif á fyrstu Laugavegsfarana í lok júní þá hefur hann engar áhyggjur af því. Snjórinn bráðni fljótt þótt ugglaust verði snjór í giljum fram eftir sumri en það sé nú bara gaman og einfaldi í raun leiðina.