Almannavarnagöngur FÍ - haust 20

Þessi mynd er tekin í nærumhverfi fjölmenns sveitarfélags. Það þarf ekki að leita langt yfir skammt til finna kyrrð og ró og fylla lungun af hreinu lofti.
Þessi mynd er tekin í nærumhverfi fjölmenns sveitarfélags. Það þarf ekki að leita langt yfir skammt til finna kyrrð og ró og fylla lungun af hreinu lofti.

Nú þegar haustar og bylgja þrjú í Covid 19 geisar sem hæst hvetur Ferðafélag Íslands alla til að fara í gönguferðir í sínu nærumhverfi undir yfirskriftinni Almannavarnagöngur Ferðafélags Íslands. Mörg hver erum við orðin þreytt á þessum faraldri sem hefur herjað á samfélagið síðustu mánuði en líkt og í krefjandi fjallgöngu er nú mikilvægt að sýna þrautseigju og dug og klára gönguna alla leið á tindinn. 

Gönguferðirnir í þessu verkefni eiga að vera frá heimili hvers þátttakenda þar sem gengið er í nærumhverfinu, allar götur og gönguleiðir í nærumhverfinu þræddar, gengið á hvern hól og hæð og um leiðir sem viðkomandi hefur ekki gengið áður í nærumhverfinu og eða gönguleiðir sem viðkomandi kann og þekkir. Gengið er með maka eða fjölskyldumeðlimum eða einn eftir atvikum. Fyrir, eftir eða á meðan göngunni stendur skal hringt í vin og sagt frá gönguferðinni og viðkomandi hvattur til að fara út að ganga. Enn betra er að hringja í vini sem þurfa sérstaklega á því að halda. Taka skal mynd í gönguferðinni og birta í Facebook hóp verkefnisins FÍ Almannavarnagöngur og merkja þær #ferdafelagislands. Eftir fjórar vikur verður dregið úr hópi þátttakenda sem sent hafa myndir úr göngunum og hljóta 5 heppnir göngugarpar glæsilega ferðavinninga með Ferðafélagi Íslands sumarið 2021.

Eins eiga almannavarnagöngur FÍ að minna fólk stöðugt á að við erum öll almannavarnir og fylgjum relgum um fjarlægð í samskiptum og notum bros og hlýju í stað handabands eða faðmlags og munum eftir öllum reglum um hreinlæti.

Við þær aðstæður sem nú eru uppi er mikilvægt að huga vel að heilsunni, þar með talið að sofa vel, borða hollan og góðan mat, brosa, hlæja og hafa gaman og góð gönguferð úti í náttúnni í fárra vina hópi er án efa eitt það allra besta sem hægt að gera.

Um leið hefur Ferðafélag Íslands aðlagað sig að nýjum reglum hvað varðar fjalla- og hreyfiverkefni félagins og verða næstu tvær vikur settar upp þrautir og heimaverkefni fyrir þátttakendur auk skráningar, félagslegs stuðnings og aðhalds. Umsjónarfólk verkefna sendir þátttakendum leiðbeiningar varðandi heimaverkefnin. 

Við erum öll almannavarnir.

Ferðafélag Íslands