Árbók Ferðafélags Íslands 2019 er komin

Árbók Ferðafélags Íslands kemur nú út í nítugasta og annað sinn. Þótt svæðið, sem er til umfjöllunar, sé minna en oft áður má færa rök fyrir því að aldrei fyrr hafi jafnmargir lesendur átt svo auðveldan aðgang að viðfangsefni árbókar í sínu nánasta umhverfi. Mosfellsheiði hefur gegnt merkilegu hlutverki í sögu samgangna milli Innnesja og Árnessýslu frá upphafi og lumar á ótal skemmtilegum gönguleiðum, sumum vörðum prýddum eins og forsíða bókarinnar ber vitni um.

Höfundar árbókarinnar eru þrír: Bjarki Bjarnason, Margrét Sveinbjörnsdóttir og Jón Svanþórsson. Þau eru öll þaulkunnug heiðinni og lýsa náttúrufari hennar, landslagi og ferðaleiðum auk þess að færa lesendum sögulegan fróðleik þar sem Þingvellir koma mjög við sögu.

Bókin er 244 blaðsíður með 190 ljósmyndum og teikningum ásamt 19 uppdráttum Guðmundar Ó. Ingvarssonar. Hjónin Þóra Hrönn Njálsdóttir og Sigurjón Pétursson eru höfundar langflestra þeirra ljósmynda sem voru beinlínis teknar fyrir útgáfuna. Að auki eru birtar gamlar ljósmyndir úr ýmsum áttum. Heimildaskrá ásamt mannanafna- og staðanafnaskrá eru á hefðbundnum stað. Að venju er í bókarlok yfirlit yfir starf Ferðafélagsins og deilda þess á landsbyggðinni á árinu 2018.

Ritstjóri árbókarinnar er Gísli Már Gíslason, og ritnefnd skipa auk hans Daníel Bergmann, Eiríkur Þormóðsson og Guðrún Kvaran.

92. árbók FÍ
Árbækur Ferðafélags Íslands hafa komið út árlega, sleitulaust síðan 1928. Í hverri bók er oftast lýsing á afmörkuðu svæði og sögulegt efni tengt því. Nær nú efni bókanna um landið allt, víða í annað eða jafnvel þriðja sinn.

Árbækurnar 92 eru því yfirgripsmikil Íslandslýsing á meira en fimmtán þúsund blaðsíðum. Bækurnar hafa frá upphafi verið myndskreyttar, fyrst í svarthvítu en nú eru árbækurnar litprentaðar frá upphafi til enda.

Félagsmenn velkomnir að sækja bókina á skrifstofu FÍ
Greiðsluseðlar vegna árgjalds Ferðafélags Íslands 2019, sem er 7.800 krónur, eru á leið til félagsmanna í pósti. Við bjóðum félagsmenn velkomna á skrifstofu FÍ Mörkinni 6 til að sækja árbókina og félagsskírteini eftir að árgjaldið hefur verið greitt. Þeir sem sækja á skrifstofuna í apríl fá óvæntan glaðning, skrifstofan er opin alla virka daga frá kl 10:00-17:00. Það væri ánægjulegt að sjá sem flesta félagsmenn. Í maí verður árbókin ásamt félagsskírteini sent heim til þeirra sem greitt hafa árgjaldið en ekki sótt árbókina á skrifstofuna.