Dagskrá FÍ fjalla- og hreyfiverkefna frestað

Eitt skref í einu...
Eitt skref í einu...

Ferðafélag Íslands frestar dagskrá fjalla- og hreyfiverkefna félagsins.  Um leið er skipt yfir í heimaverkefni, gönguferðir í nærumhverfi og hvatningu á facebókarsíðum verkefna.   Eins eru ekki aðrar ferðir ekki fyrirhugaðar á meðan þessar reglur gilda og allir skálar félagsins eru lokaðir. 

Við þær aðstæður sem nú eru uppi er mikilvægt að huga vel að heilsunni, þar með talið að sofa vel, borða hollan og góðan mat, brosa, hlæja og hafa gaman og góð gönguferð úti í náttúrunni með sínum nánustu er án efa eitt það allra besta sem við getum gert. 

Ferðafélag Íslands minnir á almannavarnagöngur FÍ sem félagið fór af stað með í vor við góðar undirtektir. 

Nú þegar haustar og bylgja þrjú í Covid 19 geisar sem hæst hvetur Ferðafélag Íslands alla til að fara í gönguferðir í sínu nærumhverfi undir yfirskriftinni Almannavarnagöngur Ferðafélags Íslands. Líkt og í krefjandi fjallgöngu er nú mikilvægt að sýna þrautseigju og dug og klára gönguna alla leið á tindinn.

Gönguferðirnir í þessu verkefni eiga að vera frá heimili hvers þátttakenda þar sem gengið er í nærumhverfinu, allar götur og gönguleiðir í nærumhverfinu þræddar, gengið á hvern hól og hæð og um leiðir sem viðkomandi hefur ekki gengið áður í nærumhverfinu og eða gönguleiðir sem viðkomandi kann og þekkir. Gengið er með maka eða fjölskyldumeðlimum eða einn eftir atvikum. Fyrir, eftir eða á meðan göngunni stendur skal hringt í vin og sagt frá gönguferðinni og viðkomandi hvattur til að fara út að ganga. Enn betra er að hringja í vini sem þurfa sérstaklega á því að halda. Taka skal mynd í gönguferðinni og birta í Facebook hóp verkefnisins FÍ Almannavarnagöngur og merkja þær #ferdafelagislands. Eftir fjórar vikur verður dregið úr hópi þátttakenda sem sent hafa myndir úr göngunum og hljóta 5 heppnir göngugarpar glæsilega ferðavinninga með Ferðafélagi Íslands sumarið 2021.

Eins eiga almannavarnagöngur FÍ að minna fólk stöðugt á að við erum öll almannavarnir og fylgjum relgum um fjarlægð í samskiptum og notum bros og hlýju í stað handabands eða faðmlags og munum eftir öllum reglum um hreinlæti.