Ferðafélag Íslands – Árbók 2023 / FLÓINN – MILLI ÖLFUSÁR OG ÞJÓRSÁR

Árbók Ferðafélags Íslands kemur nú út 96. árið í röð. Eins og titill bókarinnar, Flóinn ­– milli Ölfusár og Þjórsár, gefur til kynna er fjallað um undirlendi Árnessýslu sem markast nokkurn veginn af Ölfusá í vestri, Hvítá í norðri, Þjórsá í austri og strandlengjunni milli árósanna í suðri.

 

Lesendur kynnast svæðinu með því að þræða hina sjö fornu hreppa Flóans undir leiðsögn höfundanna sem lýsa því sem fyrir augu ber og rifja upp söguna.

 

Meginhluta bókarinnar skrifa Inga Lára Baldvinsdóttir sagnfræðingur og Magnús Karel Hannesson kennari og fyrrverandi oddviti, bæði búsett á Eyrarbakka. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur á Stokkseyri skrifar um náttúrufar svæðisins og er höfundur flestra ljósmynda. Þó að Flóinn sé ekki rismikill leynir hann á sér með fallegri og forvitnilegri náttúru. Héraðið hefur frá upphafi verið fjölbýlt og söguríkt. Frá öllu þessu greina höfundar skilmerkilega í máli og myndum og Guðmundur Ó. Ingvarsson fyllir upp í með uppdráttum og skýringarmyndum.

Bókin er 303 blaðsíður með 321 mynd og 22 kortum og línuritum. Daníel Bergmann annaðist umbrot og myndvinnslu. Bókin er litprentuð með heimildaskrá ásamt örnefna- og mannanafnaskrám. Í bókarlok er greint frá starfi FÍ og deilda þess á landsbyggðinni á árinu 2022. Bókinni ritstýrði Gísli Már Gíslason með dyggri aðstoð Guðrúnar Kvaran og Eiríks Þormóðssonar.

 

Árbækur Ferðafélags Íslands hafa bráðum komið út í heila öld, sú fyrsta árið 1928. Í bókunum er oftast lýsing á afmörkuðu svæði ásamt sögulegum og þjóðlegum fróðleik tengdum því. Árbækurnar eru því yfirgripsmikil Íslandslýsing á liðlega tuttugu þúsund blaðsíðum og hefur fyrir löngu sannað gildi sitt sem traust uppspretta upplýsinga.

 

Greiðsluseðill fyrir árgjaldi félagsins hefur verið sendur í heimabanka. Árgjaldið er kr. 8.500. Eftir að greiðsluseðilinn er greiddur þá er árbókin borin út til félagsmanna. Um leið eru upplýsingar um rafræn skírteini send í pósti og hægt að virkja þau með einföldum hætti samkvæmt leiðbeiningum sem fylgja.

 

Með góðri kveðju,

Ferðafélag Íslands