Gleði á tíu ára afmæli 
hjá Ferðafélagi barnanna

„Markmiðið með Ferðafélagi barnanna hefur ávallt verið að skapa skemmtilegan vettvang fyrir börn og fjölskyldur þeirra til að njóta útiveru, takast á við nýjar og spennandi áskoranir og hafa einafaldlega gaman af því að leika sér úti.“
Þetta segir Dalla Ólafsdóttir, sem nú leiðir þetta starf með eiginmanni sínum, Matthíasi Sigurðarsyni.

Óhætt er að segja að þessi uppskrift að félagsskap hafi virkað með stæl því starfið hefur notið mikilla vinsælda frá fyrsta degi.  Þau eru því orðin býsna mörg börnin sem hafa sótt lengri og skemmri ferðir á vegum Ferðafélags barnanna.

Þessa dagana fagnar Ferðafélag barnanna tíu ára afmæli. Þessi skemmtilegi angi af miklum meiði Ferðafélags Íslands tók að vaxa frá fyrsta degi en hugmyndin er sótt til Noregs þar sem DNT Ung hefur átt miklum vinsældum að fagna.

Þegar félög fagna stórafmæli er yfirleitt ástæða til að gleðjast og gera eitthvað til hátíðabrigða. Það verður svo sannarlega gert núna í júní hjá Ferðafélagi barnanna.

„Við ákváðum að hafa gaman í afmælisviku Ferðafélags barnanna en fjörið verður frá 10. til 13. júní,“ segir Dalla.  „Leikur og gleði hafa verið í forgrunni hjá okkur samhliða því að leyfa börnum að reyna á sig úti í fallegri íslenskri náttúru. Við hefjum því afmælisvikuna í Heiðmörkinni okkar fallegu þar sem við ætlum á öðrum degi Hvítasunnu að hittast í góðum lundi og fara í ýmsa skemmtilega útileiki.“

Fjörið í Heiðmörkinni verður tilvalið fyrir yngri börnin og auðvitað alla þá sem eru ungir í anda. „Svo ætlum við að leika okkur á hjólum þriðjudaginn 11. júní í Elliðaárdalnum – reyna okkur á skemmtilegum stígum og æfa hjólataktana,“ segir Matthías.

Hann bætir því við að miðvikudaginn 12. júní verði svo æfingar í hugrekki og þá gefist unga fólkinu einstakt færi á að prófa sjósund í Nauthólsvík.

„Já,“ segir Dalla og brosir, „við teljum upp að tíu í köldum sjónum og yljum okkur svo í heitu pottunum.“
Þau hjónin segja að aðalafmælishátíðin verði svo fimmtudagskvöldið 13. júní þegar farið verður í afmæliskvöldgöngu á Helgafell í Hafnarfirði. „Við ætlum að syngja afmælissönginn og vonandi fáum við góða gesti til að fagna með okkur. Við vonumst sannarlega til að sjá í þeirri göngu alla vini okkar fyrr og nú,“ segir Dalla.  Við það tækifæri munum við einnig fagna með samstarfsaðilum okkar í Fjallakofanum sem fagna 15 ára afmæli á þessu ári.

Komum hreinlega alsæl heim eftir hverja ferð
Þau Dalla og Mattías tóku við umsjón með Ferðafélagi barnanna fyrir tveimur árum og hafa haldið býsna vel um þá. Þau eru enda ung í anda og eiga líka þrjú börn sem eru jafnan með í hverri einustu ferð.

Þau hjónin tala nánast í kór um hvað það hafi veitt þeim mikla gleði og ánægju að kynnast fjölda fjölskyldna í þessu verkefni. „Við komum hreinlega alsæl heim eftir hverja einustu ferð. Svo er frábært að geta sinnt svona verkefni sem börn okkar hjóna hafa sömuleiðis gaman af.“

Hjálparsveitarmaðurinn, náttúrubarnið og barnakennarinn
Það fer vel á því að þau Dalla og hjáparsveitarmaðurinn Matthías sinni þessu skemmtilega verkefni með íslenskum börnum. Hann er gamalreyndur hjálparsveitarmaður sem hefur sopið fjölmörg fjallavötnin. Dalla elskar að vinna með börnum enda ætlar hún sér að verða barnakennari þrátt fyrir að hafa lokið námi í lögfræði frá Háskóla Íslands fyrir allmörgum árum. Hún hefur unnið sem lögfræðingur um allanga hríð en vill nú söðla um og er í kennaranámi í Háskóla Íslands.

Dalla ólst upp á Nesinu þar sem fuglar eru hvað mest áberandi í borgarlandinu en hún féll samt ekki alveg fyrir íslenskri náttúru fyrr en hún hitti náttúrubarnið Matthías og þau fóru að stinga saman nefjum. Nú svo komið að Dalla veit ekkert betra en að ganga á fjöll með fjölskyldunni og að synda í Elliðavatni að sumarlagi innan um himbrima, húsendur og urriða.  

„Það er svo margt í náttúrunni sem vekur mann hreinlega; gleðin, ævintýrin, áskoranirnar, fegurðin og svo auðvitað félagsskapurinn. Það þarf ekki að fara langt til að upplifa náttúruna en hún endurnærir sál og útivistin eflir líkama,“ segir Dalla sem býr reyndar nánast í villtri náttúru við Elliðavatnið og er í hópi þeirra stálheppnu Íslendinga sem hafa Heiðmörkina í bakgarðinum.



Þríþætt starf með áherslu á ánægjuna
Ferðafélag barnanna er stofnað að norskri fyrirmynd og hefur þrennskonar viðburði í háskerpu í starfi sínu.  Í fyrsta lagi er boðið upp á einfaldar göngur innan dagsins þar sem áherslan er á að allir geti komið með litlum eða jafnvel engum fyrirvara. Í öðru lagi er boðið er upp á lengri sumarleyfisferðir um stórkostleg svæði í náttúru Íslands þar sem fólk þarf að ákveða sig að fara með nokkrum fyrirvara.

„Nú í sumar verða t.d. farnar þrjár slíkar göngur um Laugaveginn, tvær göngur yfir Fimmvörðuháls auk þess sem við bjóðum í fyrsta skipti upp á göngu um Víknaslóðir. Þetta eru vinsælar ferðir og ótrúlega gaman að upplifa þessar ævintýraferðir með duglegum krökkum þar sem reynt er á hugrekkið, seigluna og andann. Það er alveg einstakt að sjá krakkana fá aukið sjálfstraust,“ segir Dalla.

„Og auðvitað eru þessar ferðir oft líka allnokkur áskorun fyrir fullorðna fólkið,“ bætir Matthías við. „Í fyrra hófum við svo Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar og gengum þá á sex fjöll og fengu krakkarnir sem luku því verkefni nafnbótina Fjallagarpur Ferðafélags barnanna. Það voru um hundrað börn sem luku því verkefni og fór það aftur af stað nú í vor með göngum á önnur sex fjöll.“

Dalla segir að það sé virkilega skemmtilegt að sjá staðfestuna í krökkunum að klára göngurnar í þessum mögnuðu ferðum.

„Í þriðja lagi eigum við svo í frábæru samstarfi við Háskóla Íslands undir nafninu Með fróðleik í fararnesti. Þar koma flinkir og skemmtilegir vísindamenn frá Háskólanum og bjóða upp á fróðleiksgöngur um t.d. fugla, skordýr, sveppi, fjöruna, landsnámsmenn og stjörnurnar. Þetta eru gríðarlega vinsælar göngur ár hvert og mjög ánægjulegt að geta boðið börnum upp á njóta náttúrunnar og fá fróðleikinn samhliða,“ segir Matthías sem er eins og klippur út úr auglýsingu um fjallamennsku. Hann brosir breitt og berar bjartar tennurnar og má vel við því, enda starfandi tannlæknir.

Háfjallamaðurinn Matthías
Háfjallamaðurinn Matthías hóf feril sinn á fjöllum sextán ára gamall með björgunarsveitinni Ingólfi og hafði lengi langmest dálæti á Íslandi yfir þann tíma þegar fæstir vilja fara neitt. Yfir háveturinn.  Hann hefur gengið þvert yfir landið á gönguskíðum, farið um óteljandi rinda, hlíðar og tinda á fjallaskíðum, gengið á óteljandi toppa á Íslandi auk þess að skreppa á Denali í Alaska, á Matterhorn sem margir tengja við Toblerone-súkkulaðið og svo auðvitað á Mont Blanc, hæsta fjall Evrópu.

„Einfaldleikinn í stórbrotinni náttúru er ómetanlegur og gefur lífinu dýpra og meira gildi,“ segir Matti. „Við sjáum það líka á börnunum okkar að göngurnar hafa gefið þeim aukinn þroska og skilning og virðingu fyrir náttúrunni. Svo finnst krökkum fátt skemmtilegra en að vera úti að leika og vera með fólkinu sínu og það er svo gaman að sameinast á ferðalögum í náttúru Íslands.“

Þess má geta að Ferðafélag barnanna er hugsað fyrir félagsmenn FÍ en engu að síður eru fjölmargar ferðir ókeypis og bara fyrir alla – þetta á t.d. við um fróðleiksferðirnar með Háskóla Íslands.

Við hvetjum fjölskyldur til að taka þátt í afmælinu framundan og njóta þess svo í framhaldinu að hreyfa sig í íslenskri náttúru – er eitthvað hollara? Það er alla vega erfitt að finna eitthvað skemmtilegra.