Gleðileg jól og gott farsælt komandi ár

Gleðileg jól og gott farsælt komandi ár
Gleðileg jól og gott farsælt komandi ár

Ferðafélag Íslands sendir félagsmönnum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og gott farsælt komandi ár. 

Við hvetjum ykkur til að vera dugleg að fara út að ganga yfir jólahátíðina og það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt.  Góð gönguferð í nærumhverfinu getur verið mjög gefandi og þá er hægt að skilja bílinn eftir heima.  Ef þið farið til fjalla þá er um að gera að rifja upp öryggisrelgur fjallafólks sem FÍ hefur tekið saman eftir áhættumat og greiningu á slysum til fjalla Öryggisreglur og áhættumat 

Ferðafélag Íslands sendir ekki út prentuð jólakort að þessu sinni en styrkir Samhjálp sem nemur andvirði kostnaðar við prentuð jólakort og dreifingu.