Kynningar á fjallaverkefnum

Ferðafélag Íslands heldur úti fjalla- og hreyfihópum sem ganga út á reglulegar fjallgöngur, heilsubót og góðan félagsskap. Framundan eru kynningar á verkefnum sem er að hefja göngu sína nú í janúar.  Meginmarkmið þessara verkefna er útivera, náttúruupplifun, gleði og góður félagsskapur. Eins og í öllum ferðum Ferðafélags Íslands er mikil áhersla lögð á fræðslu og öryggi á fjöllum.

 

7. janúar - Fyrsta skrefið

Kynningarfundur fjallaverkefnisins Fyrsta skrefið 2019.
Fyrsta skrefið byggist á reglubundnum göngum á þægileg fjöll. Gengið er á mismunandi fjöll einu sinni í viku. Farið er á hraða sem hentar hópnum og þrek fólks er smám saman byggt upp. Eftir sumarfrí tekur við nýtt verkefni, Næsta skrefið, frá september til áramóta.

Umsjónarmenn eru Sigrún Sæmundsen og Ólafur Sveinsson.
Kynningarfundur: Mánudaginn 7. janúar kl. 20 í risi FÍ, Mörkinni 6.

 

9. janúar. Alla leið.

Kynningarfundur fjallaverkefnisins FÍ Alla leið. Fundurinn verður haldinn í sal FÍ í Mörkinni 6 kl. 20:00, miðvikudaginn 9. janúar.

Fjallaverkefnið FÍ Alla leið er öllum opið, jafnt þeim sem áður hafa gengið í fjallaverkefnum Ferðafélags Íslands sem og þeim sem vilja prufa þessa frábæru leið til að hreyfa sig, stunda útivist, njóta náttúrunnar og kynnast skemmtilegum fjallavinum.

Æfingaáætlun FÍ Alla leið miðar að því að undirbúa þátttakendur fyrir göngu á hæsta tind landsins, Hvannadalshnúk. Undirbúningurinn er þríþættur og felst í vikulegum fjallgöngum, sem stigmagnast að erfiðleikastigi, vikulegum þrekæfingum og alhliða ferðafræðslu, meðal annars um klæðnað, búnað, næringu, öryggismál og jöklagöngur.

Á dagskránni eru ein kynningarganga, átta mánudagsgöngur, sjö dagsleiðangrar, vikulegar þrekæfingar, heimaverkefni, tveir fræðslufundir og svo val um að ganga á Hvannadalshnúk annað hvort 25. maí eða 8. júní. Ef illa viðrar uppgöngudaginn er sunnudagur til vara.

Umsjónarmaður er Hjalti Björnsson.
Kynningarfundur: Miðvikudaginn 9. janúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6.

 

10. janúar.  Eitt fjall á mánuði - Léttfeti, Fótfrár og Þrautseigur.

Að þessu sinni eru þrjú fjallaverkefni kynnt. Léttfeti, Fótfrár og Þrautseigur.

Léttfeti stendur allt árið og er hugsað fyrir þá sem vilja koma sér af stað að nýju eftir hlé sem og alla þá sem vilja koma reglulegum, auðveldum fjallgöngum inn í dagatalið sitt. Farið er í 10 dagsferðir og eina helgarferð þannig að alls er gengið á að minnsta kosti 12 fjöll. Fjöllin sem fyrir valinu verða eru í léttari kantinum.

Fótfrár stendur allt árið og er tilvalið fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af fjallgöngum þar sem þessi hópur ræðst til á erfið og krefjandi fjöll. Þátttakendur þurfa því að vera í nokkuð góðu gönguformi. Farið er í 10 dagsferðir og eina helgarferð þannig að alls er gengið á að minnsta kosti 12 fjöll. Göngurnar verða í hraðari kantinum og nokkuð krefjandi.

Þrautseigur er verkefni sem er ætlað þeim sem vilja ganga meira og hittast oftar gefst kostur á að taka þátt í báðum verkefnunum hér að ofan, þ.e. bæði FÍ Léttfeta og FÍ Fótfrá. Þá er gengið á að minnsta kosti 24 bæði létt og krefjandi fjöll, í 20 dagsferðum og tveimur helgarferðum yfir árið. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðu gönguformi.

Umsjónarmenn eru Einar Ragnar Sigurðsson og Höskuldur Björnsson.
Kynningarfundur: Fimmtudaginn 10. janúar kl. 20 í sal FÍ, Mörkinni 6.