Norðurljós og stjörnur með FB

Horft til himins
Horft til himins

Norðurljós og stjörnur
með Sævari Helga

 „Við munum sjá Vetrarbrautina okkar og ætlum svo að skoða fyrirbæri í henni og utan hennar. Ef við erum heppin sjáum við norðurljós,“ segir Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari við Háskóla Íslands sem leiðir göngu á vit himinhvolfsins föstudagskvöldið 1. febrúar. Hann segist vera mjög spenntur fyrir göngunni sem er í boði Ferðafélags barnanna og Háskólans. Gangan er liður í röðinni „Með fróðleik í fararnesti,“ samstarfsverkefni FÍ og HÍ.

Þátttakendur munu safnast saman við skrifstofu Ferðafélagsins í Mörkinni 6, kl. 20 og aka í halarófu út fyrir borgarmörkin. Ferðinni er heitið að Kaldárseli í Hafnarfirði og þeir sem það vilja geta hitt hópinn þar um kl. 20:20.

Markmið göngunnar er að hvetja fólk til þess að njóta náttúrunnar að vetri til og himingeimsins nú þegar veður geta orðið stillt og skilyrði verða til stjörnuskoðunar. Hinn sívinsæli Sævar Helgi Bragason mun lýsa því sem fyrri augu ber á kvöldhimninum en hann er fyrir löngu orðinn landsþekktur fyrir miðlun sína á undrum himingeimsins.  Hann hefur t.d. kennt stjörnufræði við góðan orðstír í Háskóla unga fólksins og í Háskólalestinni við Háskóla Íslands undanfarin ár, sem bæði eru verðlaunaverkefni á vegum skólans.  Þá hefur Sævar Helgi farið mikinn í sjónvarpi og útvarpi og ritað frábærar bækur um hugðarefni sín. Flestar fjalla þær á einhvern hátt um geiminn en sú síðasta kom út um sl. jól og ber heitið Svarthol. Sævar Helgi er einnig höfundur hinnar gríðarlega vinsælu bókar Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna þar sem hann sendi þjóðina út að horfa til himins.

Sævar Helgi er til viðbótar þessu ritstjóri Stjörnufræðivefsins, kennir menntaskólanemum að meta stjörnur og plánetur, kennir grunnskólakrökkum og fræðir áhorfendur og hlustendur KrakkaRÚV um allt milli himins og jarðar. Hann hefur auk þess hlotið ýmis verðlaun fyrir vísindamiðlun og er núna að vinna að nýrri þáttaröð fyrir RÚV um lofslagsbreytingar. Óhætt að segja að þessi ungi snillingur komi víða við.

Gangan föstudagskvöldið 1. febrúar er sú fyrsta af sjö á þessu ári í samstarfi Ferðafélags barnanna og Háskólans undir yfirskriftinni „Með fróðleik í faranesti“. Ferðirnar eru hugsaðar fyrir alla fjölskylduna og aðgangur að þeim er ókeypis.

 Vonandi verða norðurljósin sýnileg

Fáir hafa meiri ást á stjörnum himinhvolfsins hér á landi en Sævar Helgi og það kom berlega í ljós í sams konar göngu Háskólans og Ferðafélagsins í fyrra þar sem nokkur hundruð manns hlýddu á hann lýsa himinhvolfinu. Föstudagskvöldið 1. febrúar mun Sævar Helgi svara spurningum gesta, t.d. af hverju stjörnur eru mismunandi á litinn. Við getum tekið smá forskot á sæluna og fengið hann til að ljósta því upp: „Stjörnurnar eru mismunandi á litinn vegna þess að þær eru misheitar. Heitustu stjörnurnar eru bláhvítar en köldustu rauðar, öfugt við það sem ætla mætti því í daglegu lífi notum við rautt fyrir heitt og blátt fyrir kalt. Bláu og bláhvítu stjörnurnar eru allt að 50.000°C heitar, tíu sinnum heitari en sólin okkar, en rauðu stjörnurnar eru ekki nema um 3500°C,“ svarar Sævar að bragði.

 Sverðþokan í sjónaukanum

Sævar og stjörnuteymið hans verða með stjörnusjónauka á staðnum og gefst göngugestum kostur á að rýna langt út í geiminn. „Við ætlum til dæmis að horfa 2,5 milljónir ljósára út fyrir Vetrarbrautina okkar á næsta nágranna okkar í geimnum, Andrómeduvetrarbrautina, sem stefnir á okkur á 110 km hraða á sekúndu eða svo. Eftir fjóra milljarða ára rekst hún á okkur. Við ætlum líka að skoða geimþoku sem heitir Sverðþokan í Óríon. Það er alveg sérstaklega glæsilegt fyrirbæri sem er í raun fæðingardeildin á himninum. Þar eru nýjar stjörnur að klekjast út úr gas- og rykhýðum. Ein þessara stjarna er heitasta stjarna sem við getum við séð á himinhvolfinu,“ segir Sævar. 

„Svo mæli ég með því að fólk komi með handsjónauka því maður sér ansi margt með slíkum sjónaukum, til dæmis Andrómeduvetrarbrautina og Sverðþokuna í Óríon.“

 Hist í Mörkinni og ekið í Kaldársel

Við upphaf ferðar verður hist við skrifstofu Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 kl. 20 þaðan sem ekið verður að Kaldárseli. Áætlað er að ferðin taki um 2 til 3 klukkustundir. Það er tilvalið fyrir fjölskylduna að skella sér í hressandi göngu og fræðast um leið um himintunglin.

Ferðafélag Íslands og Háskólinn hafa undanfarin átta ár staðið saman að göngu- og hjólaferðum undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum ferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess.

Þátttaka er ókeypis eins og áður sagði og allir eru velkomnir. Ef ekki viðrar til himinskoðunar þennan dag verður ferðinni frestað þar til góðar aðstæður skapast og verður það auglýst á facebook og heimasíðu HÍ og FÍ. Hér má sjá spá Veðurstofunnar fyrir möguleika á sjá norðurljósin: http://www.vedur.is/vedur/spar/nordurljos/

Við vekjum sérstaka athygli á því að það eru ekki ýkja mörg bílastæði í boði svo fólk þarf að leggja beggja vegna við veginn við Kaldársel og hafa góðar gætur á öllu í náttmyrkrinu. Gengið verður frá bílastæðinu ofan við Kaldársel, það er sá staður sem margir kannast við sem upphafspunkt gönguleiðar á Helgafell. 

Hér má fá upplýsingar um allar ferðir þessa árs í röðinni um Fróðleik í fararnesti:

https://www.fi.is/is/um-fi/frettir/med-frodleik-i-fararnesti-1