Nyrstu tangar landsins

Heimskautsgerðið
Heimskautsgerðið

Við vekjum athygli á spennandi ferð sem Ferðafélagið Norðurslóð stendur fyrir 22.-26. júní. Í ferðinni sem er bækistöðvaferð eru nyrstu tangar landsins heimsóttir. 

Lýsing á ferðinni

Ferðin "Raufarhöfn og nágrenni" sem Ff. Norðurslóð stendur fyrir, er nýjung í gönguferðageiranum.

Ferðin er einn skór skv. skilgreiningu; léttar og stuttar dagleiðir (yfirleitt 4-6 klst). Eingöngu gengið á sléttlendi, engar ár þarf að vaða og einungis léttur dagspoki borinn. Ferðin er bækistöðvarferð, dvalið er á Raufarhöfn á gistiheimili með góðri aðstöðu til að njóta saman morgunverðar og útbúa dagsnesti. Eftir göngu og heimsókn í sundlaugina njótum við kvöldmatar í veitingahúsinu Kaupfélaginu, sem er við hlið gistihússins. Síðan er haldin kvöldvaka með fróðleik og skemmtun á hverju kvöldi.

Birtan er töfrandi á Melrakkasléttu um Jónsmessuna, 22. – 26. júní og sólin sest ekki, heldur skín daga og nætur. Raufarhöfn við heimskautsbaug er þorp með mikla sögu og minjar, og fuglalífið er fjörugt og fjölskrúðugt. Gengið verður á nyrstu tanga landsins, sungið í vitum, komið á söguslóðir Fóstbræðrasögu og gengið með fengsælum veiðiám. Heimskautsgerðið verður heimsótt og heilsað upp á síldarstúlkuna.

Nánari upplýsingar í síma 892-8202. 

Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina í síðasta lagi 20. maí. Skráning hjá ffnordurslod@simnet.is.

Verð: 55.000 / 60.000.

Innifalið: Gisting, 3x kvöldmatur, göngukort, fararstjórn.

Dagskrá

22. – 26. júní Raufarhöfn og nágrenni (einn skór)

Fjögurra daga bækistöðvarferð. Raufarhöfn við heimskautsbaug er þorp með mikla sögu og birtan er töfrandi á Melrakkasléttunni um Jónsmessuna. Gengið verður á nyrstu tanga landsins og komið á söguslóðir Fóstbræðrasögu.

Dagur 1: Þátttakendur mæta á gististað á Raufarhöfn á Melrakkasléttu og koma sér fyrir. Kl. 20:00 er fundur með fararstjóra um dagskrá næstu daga. 

Dagur 2: Á og í kringum Raufarhöfn. Gengið meðfram höfninni, að vitanum, um höfðann, upp að Heimskautsgerði, niður á Klifin, yfir Ásinn, niður að sjó og heim aftur. (10 km.) Síldarsögur og aðrar sögur.

Dagur 3: Nyrstu tangar landsins. Ekið út á Melrakkasléttu, gengið út á Hraunhafnartanga, ekið til vesturs og gengið út að Rifi á Rifstanga. (12 km.) Fóstbræðrasaga og búskaparsaga.

Dagur 4: Ekið suður fyrir Deildará og gengið upp með ánni, síðan fram Bæjarásinn, út á Hólshöfðann og meðfram sjónum að upphafsreit. (11 km.) Fallegar flúðir og sjávarsýn.

Dagur 5: Gengið út á Súlur sunnan Raufarhafnar. Komið við í Krókshöfn og Súlnahöfn. (7 km.)