Raufarhöfn og nágrenni

Heimskautsgerðið á Melrakkasléttu.
Heimskautsgerðið á Melrakkasléttu.

Ferðafélagið Norðurslóð býður upp á nýjung sem er fimm daga bækistöðvarferð dagana 19. – 23. júní og er erfiðleikastig ferðarinnar einn skór.

Raufarhöfn er þorp við heimskautsbaug með mikla sögu og birtan er töfrandi á Melrakkasléttu um sólstöðurnar þegar sólin sest ekki. Fuglalífið er fjörugt og fjölskrúðugt. Meðal annars verður gengið á tvo nyrstu tanga landsins og meðfram fengsælum veiðiám, komið á söguslóðir Fóstbræðrasögu, sungið í vitum, sagðar síldasögur, sögur af fólki, fuglum, hvölum og fleiru

Þessi ferð er einn skór eins og áður sagði, dagleiðir eru 7 – 14 km, ekki þarf að vaða, gengið er á sléttlendi og að mestu leyti á góðu göngulandi.

Gisti er í gistihúsi með uppbúnum rúmum og góðri aðstöðu til að útbúa morgunmat og nesti. Einnig til að njóta samveru á kvöldin við fróðleik og skemmtun eftir göngu og heimsókn í sundlaugina. Kvöldmatur er innifalinn.

Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina í síðasta lagi 10. júní.

Allar nánari upplýsingar og skráning hjá ffnordurslod@simnet.is.

Verð: 54.000/ 59.000. Innifalið: Gisting, 3 x kvöldmatur, göngukort, fararstjórn.

 

  1. dagur, sunnudagskvöld: Þátttakendur mæta í Gistihúsið Hreiðrið á Raufarhöfn á Melrakkasléttu og koma sér fyrir. Kl. 20:00 er fundur með fararstjóra um dagskrá næstu daga.
  2. dagur: Á og í kringum Raufarhöfn. Gengið meðfram höfninni, að vitanum, um Höfðann, upp að Heimskautsgerði, niður á Klifin, yfir Ásinn, niður að sjó og heim aftur. (10 km.) Síldarsögur og aðrar sögur.
  3. dagur: Nyrstu tangar landsins. Ekið út á Melrakkasléttu, gengið út á Hraunhafnartanga, ekið til vesturs og gengið út að Rifi á Rifstanga. (14 km.) Fóstbræðrasaga og búskaparsaga.
  4. dagur: Ekið suður fyrir Deildará og gengið upp með ánni, síðan fram Bæjarásinn, út á Hólshöfðann og meðfram sjónum að upphafsreit. (11 km.) Fallegar flúðir og sjávarsýn.
  5. dagur: Gengið út á Súlur sunnan Raufarhafnar. Komið við í Krókshöfn og Súlnahöfn. (7 km.)

    Hraunhafnartangi