Öxarfjörður út og suður 9.-13. júlí. Sumarleyfisferð Ferðafélagsins Norðurslóðar við Öxarfjörð.

Öxarfjörður út og suður 9.-13. júlí. Nokkur sæti laus í sumarleyfisferð Norðurslóðar við Öxarförð. Gengið frá fjöru til fjalla, um núpa, gil og gljúfur. Gist er á farfuglaheimili á Kópaskeri í fjórar nætur. Ekki er gert ráð fyrir sameiginlegum mat fyrsta kvöldið en góð eldunaraðstaða er á farfuglaheimilinu.


1. dagur, þriðjudagur: Mæting á Farfuglaheimilið á Kópaskeri. Þátttakendur koma sér fyrir. Fræðslufundur 20:00 þar sem farið er yfir dagskrá næstu daga.
2. dagur: Gengið út að Snartarstaðanúp, um Grímshöfn, Vörsluvík og fleiri víkur, með viðkomu í Kópaskersvita. Yfir Núpinn og ofan í Hvalvík. Ekið að Núpskötlu og gengið á Rauðanúp. (15 km.)
3. dagur: Menningar- og fræðslurölt á Kópaskeri og næsta nágrenni. Byggðasafnið og Skjálftasetur heimsótt og gengið um Kópaskersmisgengið. (8 km)
4. dagur: Gengið að Naustárfossi, þaðan upp á Öxarnúp, litið yfir Öxarfjörðinn. Gengið í Klaufargerði og fræðst um kumlið sem fannst þar í grenndinni. Síðan um Svelting í Buðlungahöfn. (14 km)
5. dagur: Eftir heimsókn í Grettisbæli verður gengið upp með Jökulsá að austan, um Borgirnar upp að Gloppu. Ofan í gljúfrin og upp úr þeim aftur. Fáfarnar slóðir í ævintýralegu umhverfi Jökulsárgljúfra. (8 km)
Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina í síðasta lagi 8. júní.

Skráning hjá ffnordurslod@simnet.is.
Verð: 51.000 / 56.000. Innifalið: Gisting, 3x kvöldmatur, akstur, aðgangseyrir, göngukort, fararstjórn.