Þolmörk ferðamanna í Landmannalaugum árið 2019 og samanburður við árin 2000 og 2009

Undanfarið hafa rannsakendur á vegum Líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands í samstarfi við Ferðafélags Íslands unnið að svokölluðum þolmarkarannsóknum meðal ferðamanna í Landmannalaugum.

Markmiðið með rannsókninni er meðal annars að kanna hvað einkennir ferðamenn í Landmannalaugum (t.d. þjóðerni, ferðamáti, gistimáti og dvalarlengd), hvernig ferðamenn skynja umhverfi og landslag svæðisins, hvort að ferðamenn séu ánægðir með ferð sína um svæðið og hvað þeim finnst um þá aðstöðu sem er á svæðinu.

Sambærilegar rannsóknir voru gerðar árin 2000 og 2009 og verða niðurstöður ársins 2019 bornar saman við þær fyrri þ.a. hægt sé að fylgjast með þróun ferðamennsku á svæðinu.

Umsjón með þessu verkefni eru Anna Dóra Sæþórsdóttir prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, Edda Rut Hlín Waage lektor í land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands og Edita Tverijonaite, doktorsnemi í ferðamálafræði við Háskóla Íslands.