Upplifðu Hálendið - Samstarfsverkefni Landverndar, FÍ og Skátanna

UPPLIFÐU HÁLENDIР

Hálendisferð Landverndar, Ferðafélags Íslands og Bandalag Íslenskra Skáta.

Markmiðið er að bjóða ungmennum á aldrinum 15-20 ára tækifæri til að skoða og upplifa hálendið og miðla upplýsingum um það til almennings með fjölbreyttum leiðum, t.a.m. í gegnum Instagram, með ljósmyndum, greinaskrifum, ljóðagerð, teikningum eða öðru. Þátttakendur fá fræðslu um miðlun og fréttamennsku í ferðinni og aðgang að samfélagsmiðlum Landverndar og Skátanna. Dagskráin inniheldur dagsferðir út frá skálunum þar sem náttúran er skoðuð, rætt um loftlagsbreytingar, frætt um umhverfi, landslag og veður ásmat því að þátttakendur efla sig í útivist, hreyfingu og félagstenglsum.

Þátttakendur fara með reyndum bílstjóra og fararstjórum sem annars matseld og gist verður í skálum á hálendinu. Leitað er eftir 10 þátttakendum sem eru síðan tilbúin að segja öðrum frá ferðinni.

Fyrir hverja er ferðin:

  • Ferðin er fyrir skráða skáta eða skráð ungmenni í FÍ Ung
  • Vera á aldrinum 15-20 ára

Hvað kostar:

Ferðin er styrkt af Landvernd, Skólum á grænni grein og af Ferðafélagi Íslands og kostar ekki neitt fyrir þátttakendur.